Ítalía Guðný skrifar undir samning við AC Milan á næstu dögum.
Ítalía Guðný skrifar undir samning við AC Milan á næstu dögum. — Morgunblaðið/Eggert
Knattspyrnukonan Guðný Árnadóttir gekkst undir læknisskoðun hjá ítalska stórliðinu AC Milan í gær samkvæmt heimildum mbl.is. Guðný, sem er tvítug, hefur leikið með Val frá árinu 2019 og varð Íslandsmeistari með liðinu síðasta sumar.

Knattspyrnukonan Guðný Árnadóttir gekkst undir læknisskoðun hjá ítalska stórliðinu AC Milan í gær samkvæmt heimildum mbl.is.

Guðný, sem er tvítug, hefur leikið með Val frá árinu 2019 og varð Íslandsmeistari með liðinu síðasta sumar. Hún er uppalin hjá FH og á að baki 83 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað sex mörk. Þá á hún að baki átta A-landsleiki. Kvennalið AC Milan var stofnað í júlí 2018 en liðið er í öðru sæti ítölsku A-deildarinnar með 21 stig eftir átta leiki. bjarnih@mbl.is