Fiskislóð Lóðirnar sem hafnirnar benda á eru óbyggðar og með óheft útsýni yfir Faxaflóann.
Fiskislóð Lóðirnar sem hafnirnar benda á eru óbyggðar og með óheft útsýni yfir Faxaflóann. — Morgunblaðið/sisi
Malasíski kaupsýslumaðurinn Vincent Tan hefur ekki áhuga á því að byggja lúxushótel á Fiskislóð í Örfirisey. Faxaflóahafnir bentu á þessar lóðir sem mögulegan kost um leið og tekið var neikvætt í óskir Tans um að byggja hótelið á Miðbakkanum.

Malasíski kaupsýslumaðurinn Vincent Tan hefur ekki áhuga á því að byggja lúxushótel á Fiskislóð í Örfirisey. Faxaflóahafnir bentu á þessar lóðir sem mögulegan kost um leið og tekið var neikvætt í óskir Tans um að byggja hótelið á Miðbakkanum.

Í umsögn Magnúsar Þórs Ásmundssonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna, til skipulagsfulltrúa Reykjavíkur vegna umsóknar Tans bendir hann á að Faxaflóahafnir eigi aðrar lóðir sem gætu hentað undir hótelstarfsemi. Aðspurður segir Magnús að um sé að ræða lóðirnar Fiskislóð 33-37 í vesturhluta Örfiriseyjar. Þessar lóðir eru milli bílaþvottastöðvarinnar Löðurs og olíubirgðastöðvarinnar, gegnt húsi Forlagsins, bókaútgáfu. Magnús segir í umsögninni að þessar lóðir séu óbyggðar með óhindruðu útsýni. Faxaflóahafnir sjái sóknarfæri í auknum byggingarheimildum í Vesturhöfn Gömlu hafnarinnar með því að hækka nýtingarhlutfall lóðanna úr 0,5 í 1,0 og jafnvel meira á einhverjum lóðum.

Lóðirnar á Fiskislóð eru í eigu Faxaflóahafna en þeim hefur verið úthlutað, þ.e. lóðarleigusamningur er á bak við þær. Magnús segir að uppbygging þar verði væntanlega ekki nema að undirlagi lóðarhafa. „Það er hins vegar svo að aðilinn sem hefur áhuga á hótelbyggingu á Miðbakkanum hefur ekki áhuga á þessari staðsetningu,“ segir Magnús. sisi@mbl.is