Íslenska U21-árs karlalandsliðið í knattspyrnu er öruggt um sæti sitt á lokakeppni EM í Ungverjalandi og Slóveníu á næsta ári. Knattspyrnusamband Evrópu staðfesti þetta í gær.
Íslenska U21-árs karlalandsliðið í knattspyrnu er öruggt um sæti sitt á lokakeppni EM í Ungverjalandi og Slóveníu á næsta ári. Knattspyrnusamband Evrópu staðfesti þetta í gær.
Ísland átti eftir að leika lokaleik sinn í undankeppninni gegn Armeníu sem varð að draga sig úr keppni. Áfrýjunardómstóll UEFA hefur nú úrskurðað Íslandi 3:0-sigur í þeim leik sem þýðir að liðið endar í 2. sæti riðilsins með 21 stig en það dugar til að komast í lokakeppnina.