Emma Corrin fékk stóra tækifærið.
Emma Corrin fékk stóra tækifærið. — AFP
Loksins Enska leikkonan Emma Corrin hefur verið að fá prýðilega dóma fyrir hlutverk sitt sem Díana prinsessa af Wales í nýjustu seríunni af sjónvarpsþáttunum The Crown sem sýndir eru á Netflix.
Loksins Enska leikkonan Emma Corrin hefur verið að fá prýðilega dóma fyrir hlutverk sitt sem Díana prinsessa af Wales í nýjustu seríunni af sjónvarpsþáttunum The Crown sem sýndir eru á Netflix. Það sætir tíðindum en fyrri tilraunir til að gera prinsessunni skil á hvíta tjaldinu og skjánum hafa þótt misheppnaðar, að því er breska blaðið The Independent bendir á. „Það var tími til kominn,“ segir blaðið en margoft hefur verið reynt frá því Díana dó árið 1997.