Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
Knattspyrnukonan Ólöf Sigríður Kristinsdóttir hefur framlengt samning sinn við Val. Ólöf er 17 ára gömul og var að láni hjá Þrótti á síðustu leiktíð. Ólöf skoraði sex mörk í 14 leikjum með nýliðunum í sumar. Lék framherjinn með ÍA í 1.

Knattspyrnukonan Ólöf Sigríður Kristinsdóttir hefur framlengt samning sinn við Val. Ólöf er 17 ára gömul og var að láni hjá Þrótti á síðustu leiktíð.

Ólöf skoraði sex mörk í 14 leikjum með nýliðunum í sumar. Lék framherjinn með ÍA í 1. deild sumarið á undan og spilaði sex leiki, skoraði eitt mark. Þá lék hún einn leik með Val fyrir tveimur árum. Ólöf á 20 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.