Vetrarljóð Ragnheiðar Gröndal verða flutt í streymi í fyrsta sinn í beinni útsendingu frá Langholtskirkju á morgun, sunnudag, kl. 20.
Vetrarljóð Ragnheiðar Gröndal verða flutt í streymi í fyrsta sinn í beinni útsendingu frá Langholtskirkju á morgun, sunnudag, kl. 20. „Ég er búin að bóka Langholtskirkju og með mér verða Guðmundur Pétursson og Róbert Þórhallsson á þessum einstaka streymisviðburði. Við munum byggja efnisskrána á tónlistinni af disknum Vetrarljóðum ásamt öðru spennandi efni sem passar með. Ég sjálf elska þessi ljóð og lög og finnst þau eiga erindi til fólks á öllum aldri. Vetrarljóð er líka mín mest selda plata frá árinu 2004 og ég veit að lögin eru fyrir löngu orðin ómissandi hluti af vetrarmánuðunum hjá mörgum. Ég vona að ég geti hlýjað okkur aðeins um hjartarætur á meðan tónleikahald er í sögulegu lágmarki,“ segir hún í tilkynningu. Miðaverð er kr. 2.400 og má frekari upplýsingar finna á facebooksíðu tónleikanna með því að slá „Vetrarljóð“ inn í leitarglugga.