Sigurbjörg R. Sigþórsdóttir
Sigurbjörg R. Sigþórsdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Efnahags- og framfarastofnunin OECD virðist hvorki hafa kynnt sér aðstöðu bakaraiðnarinnar né aðgengi að námi og nemasamningum þegar stofnunin lagði til að löggilding yrði lögð af við starfshóp um bætt eftirlit með lögum um handiðnað. Þetta segir Sigurbjörg Sigþórsdóttir, formaður Landssambands bakarameistara.

Karítas Ríkharðsdóttir

karitas@mbl.is

Efnahags- og framfarastofnunin OECD virðist hvorki hafa kynnt sér aðstöðu bakaraiðnarinnar né aðgengi að námi og nemasamningum þegar stofnunin lagði til að löggilding yrði lögð af við starfshóp um bætt eftirlit með lögum um handiðnað. Þetta segir Sigurbjörg Sigþórsdóttir, formaður Landssambands bakarameistara.

Á fimmtudaginn fór fram fundur þar sem fulltrúar OECD kynntu niðurstöður 6. kafla skýrslu um samkeppnismat á íslenskri ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Fundinn sat áðurnefndur starfshópur og formenn meistarafélaga í handiðnaði.

Eins og áður hefur verið greint frá er í skýrslunni lagt til að afnema skuli löggildingu bakara og ljósmyndara. Sigurbjörg segist hafa spurst fyrir á fundinum hvers vegna bakarar séu teknir fyrir í skýrslu um ferðaþjónustu og byggingariðnað. Þá hafi lögfræðingur Samkeppniseftirlitsins, sem veitti OECD ráðgjöf við vinnu við skýrsluna, sagt ástæðuna vera gamalt mál sem tengist rekstri Sætra synda. Sami lögfræðingur viðurkenndi á fundinum að fyrirtaka bakara væri heldur handahófskennd, að sögn Sigurbjargar. Bakarar telja það grafalvarlegt ef leggja eigi niður löggildingu heillar atvinnugreinar vegna gamals máls einnar manneskju sem löngu sé gleymt og grafið.

Engar samkeppnishindranir

Þá segir Sigurbjörg að fulltrúar OECD hafi farið með rangt mál þegar því var haldið fram að hvergi í Evrópu væri bakaraiðn lögvernduð en hið rétta er að hún er lögvernduð í tíu Evrópulöndum. Einnig hafi bakarar bent á að engin samkeppnishindrun væri í aðgangi að greininni. Hver sem er getur sótt bakaranám og aldrei hefur komið til þess að nemar fái ekki samning, heldur hefur eftirspurn oft verið meiri en framboð á nemum. Þessi útskýring kom fulltrúa Samkeppniseftirlitsins á óvart og því spyrja bakarar sig hver trúverðugleiki vinnubragða við skýrsluna er ef bakarar séu af handahófi dregnir inn í skýrslu um ferðamanna- og byggingariðnað og gamalt mál verði til þess að svo miklar breytingar eigi að verða á starfsumhverfi þeirra.

Ekki var leitað til Landssambands bakarameistara og óskað eftir upplýsingum um starfsumhverfi iðnarinnar. Árið 2013 gaf OECD út skýrslu um starfsmenntun á Íslandi þar sem segir: „Sterkt iðnnámskerfi er innan löggiltra starfsgreina og byggist á árangursríku jafnvægi milli starfsþjálfunar á vinnustað og utan hans og skýrum valkostum um framhaldsmenntun til iðnmeistararéttinda eða eftir öðrum leiðum.“