Formleikur „Nú ákvað ég að taka þessi form fyrir í heilli sýningu,“ segir Árni Már um verkin sem hann sýnir á Formfast í Gallery Porti.
Formleikur „Nú ákvað ég að taka þessi form fyrir í heilli sýningu,“ segir Árni Már um verkin sem hann sýnir á Formfast í Gallery Porti. — Morgunblaðið/Einar Falur
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Það er sýnigin Formfast sem við erum að setja hér upp.

Einar Falur Ingólfsson

efi@mbl.is

Það er sýnigin Formfast sem við erum að setja hér upp. Með verkum sem hafa búið í skissubókunum mínum í tæp tíu ár,“ segir myndlistarmaðurinn Árni Már Erlingsson þegar hann er truflaður við uppsetningu sýningar sinnar í Gallery Porti á Laugavegi 23b. Sýningin verður opin frá klukkan 12 í dag, laugardag, og segir hann að sóttvarnareglum verði fylgt í hvívetna.

Á málverkunum sem Árni er að festa á veggi þessa litla salar, þar sem hann hefur staðið ásamt félögum sínum undanfarin ár fyrir líflegu sýningarhaldi, eru endurtekin form; sum sett fram í skrautlegu samhengi en eru í öðrum verkum einlit.

„Þetta eru já mismunandi form og myndir af formum sem ég hef lengi verið að dúlla mér við á bak við önnur verk. Ég held ég hafi byrjað að teikna þau upp og mála í góðum fíling árið 2012 en hef aldrei tekið þau föstum tökum. Það er ekki fyrr en nú, við undirbúning þessarar sýningar, sem ég geri það. Nú ákvað ég að taka þessi form fyrir í heilli sýningu,“ segir Árni Már og honum hefur unnist mjög vel á tímum veirunnar, hefur skapað á milli 30 og 40 verk.

Árni Már segir rætur sýningarinnar ná aftur til þess tíma er þeir Sigurður Atli Sigurðsson myndlistarmaður voru með opna vinnustofu á LungA á Seyðisfirði árið 2012. Síðan hefur Árni leikið sér með form í anda þeirra sem nú má sjá á málverkunum en þá helst í skissubókinni eða stökum verkum. Hann hafi aldrei skapað heild úr þeim eins og nú, með málverkum, verkum úr spartli, skúlptúrum og einum tíu rísóprentum sem hann gerir í tölusettu upplagi.

Útlitsleg pæling

– Standa þessi form eða tákn fyrir eitthvað ákveðið?

„Nei,“ svarar Árni Már ákveðinn. „Nei, þetta er bara fagurfræði og einhvers konar dúllerí. Útlitsleg pæling.“

– Og þú ferð með það í ýmsar áttir; frá mónókróm útgáfum yfir í býsna mikið skraut.

„Já, mér finnst til dæmis gaman að blanda þeim saman við aggressívan bakgrunn einss og hér,“ segir hann og bendir. „Þarna eru alls konar litir en ofan á þá kemur formið stóra með rólegum lit sem lokar heildinni.“

– Þú hefur sýnt oft á undanförnum árum. Þessi form hér hafa verið að mótast lengi í skissubókum hjá þér segirðu, vinnurðu venjulega þannig?

„Nei. Yfirleitt ekki. Nú er ég samt kominn með hugmynd að tveimur til þremur sýningum en hingað til hefur ferlið verið meira spontant. Og satt best að segja átti þessi sýning að vera öðruvísi til að byrja með, þetta áttu að vera portrettmyndir, en svo þóttu mér þessi form svo skemmtileg að ég ákvað að leggja þessa sýningu undir þau og kæla portrettin fram á næsta ár.

Þar næsta sýning verður svo væntanlega ljósmyndasýning.“

– Það er þinn gamli miðill.

„Algjörlega, og ég hef beðið eftir rétta tækifærinu til að hella mér aftur í hann. Taka aftur fram traktorinn, Mamyia-myndavélina.“

Reksturinn gengur vel

Árni Már stofnaði Gallery Port með þeim Skarphéðni Bergþórusyni og Þorvaldi Jónssyni árið 2016 og hafa þeir haldið úti hátt í 100 sýningum og viðburðum á þeim tíma. Þá eru listamenn með vinnustofu í húsinu. Segir Árni aðsóknina í rýmið hafa farið langt fram úr þeirra björtustu vonum. En þrátt fyrir að hafa komið að rekstrinum frá byrjun er þetta fyrsta einkasýning Árna Más í Porti.

„Ég veit í raun ekki hvers vegna ég hef ekki sýnt hér sjálfur fyrr. Ég hef einu sinni verið með á samsýningu Listar án landamæra. Ég hef bara verið að sýna annars staðar.

Uphaflega átti Gallery Port bara að vera til í stuttan tíma, þrjá til fimm mánuði, en húsið var ekki rifið eins og fyrst stóð til og reksturinn hefur gengið vel.

Skarphéðinn sem stofnaði þetta með mér var með einkasýningu hér í fyrra og ég varð að ná að hafa eina svoleiðis líka.“