Sveinbjörn Iura
Sveinbjörn Iura
Júdókappinn Sveinbjörn Iura féll úr leik í 2. umferð á Evrópumótinu í Prag í gær er hann mætti Rúmenanum Marcel Cercea. Sveinbjörn, sem keppir í -81 kg flokki, sat hjá í 1. umferð. Cercea mætir Ivaylo Ivanov frá Búlgaríu í 3. umferðinni.

Júdókappinn Sveinbjörn Iura féll úr leik í 2. umferð á Evrópumótinu í Prag í gær er hann mætti Rúmenanum Marcel Cercea.

Sveinbjörn, sem keppir í -81 kg flokki, sat hjá í 1. umferð. Cercea mætir Ivaylo Ivanov frá Búlgaríu í 3. umferðinni.

Tapið gæti haft mikil og neikvæð áhrif á baráttu Sveinbjörns um að komast á Ólympíuleikana í Tókýó en hann hefur sett stefnuna á að komast á leikana.