Kveðjustund í gær Jón Gunnar Ottósson í góðum félagsskap.
Kveðjustund í gær Jón Gunnar Ottósson í góðum félagsskap. — Morgunblaðið/Eggert
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Í gær var síðasti vinnudagur Jóns Gunnars Ottóssonar sem forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Í gær var síðasti vinnudagur Jóns Gunnars Ottóssonar sem forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands. Hann gegndi starfinu frá 1994 og vann í raun við fag sitt hjá ríkinu á einn eða annan hátt frá því hann varði doktorsritgerð um samskipti skordýra og burkna frá Háskólanum í Exeter á Englandi 1981 eða í tæplega 40 ár. „Nú er komið nóg og gott að skipta um mann í brúnni,“ segir Jón Gunnar, sem varð sjötugur á föstudag.

Náttúrufræðistofnun var í óhentugu, lélegu og litlu húsnæði við Hlemm í Reykjavík, þegar Jón Gunnar tók við stjórninni, en er nú með starfsstöðvar í nýlegu húsnæði í Urriðaholti í Garðabæ sem og á Akureyri auk þess sem borkjarnasafn stofnunarinnar er rekið í samstarfi við Breiðdalssetur á Breiðdalsvík. „Síðan ég byrjaði hefur Náttúrufræðistofnun Íslands verið byggð upp, henni komið á koppinn í þjóðfélaginu og starfsmönnum fjölgað úr um 10 í 50 til 60,“ segir hann. „Þetta er allt önnur stofnun.“

Nútímavæðing og gagnasöfnun

Á löngum ferli segir Jón Gunnar að nútímavæðing stofnunarinnar standi helst upp úr. Hún hafi verið færð meira í átt til alþjóðlegra skuldbindinga og vinnubrögðin taki meira mið af því sem gerist á alþjóðlegum markaði en áður. „Það stendur líka upp úr að þótt miklar breytingar hafi verið gerðar á náttúruverndarlögum og annarri löggjöf hefur oft gengið mjög illa að koma þeim í framkvæmd.“

Margt hefur áunnist hjá stofnuninni og Jón Gunnar segir að eitt það merkilegasta sem hann hafi staðið fyrir séu ný vinnubrögð við skrásetningu á náttúru Íslands. „Við höfum aldrei haft jafn góð og mikil gögn um náttúruna og nú.“

Auk hefðbundinna starfa var Jón Gunnar meðal annars fulltrúi Íslands í ótal alþjóðasamningaviðræðum í náttúruverndarmálum frá 1990, í fjölda nefnda, skrifaði margar greinar um náttúrufræðileg efni og flutti erindi. Hann segir að starfið hafi veitt sér mikla ánægju. „Það er skemmtilegt að geta unnið að áhugamáli sínu, íslenskri náttúru, og fengið öll þessi tækifæri til þess eins lengi og raun ber vitni,“ segir hann. „Svo hef ég verið sérstaklega heppinn með starfsfólk alla tíð, þetta eru sérvitringar og skrýtið fólk en mjög klárt.“

Þorkell Lindberg Þórarinsson tekur við starfi forstjóra NÍ í dag. „Hann tekur við góðu búi,“ segir Jón Gunnar og vísar til þess að stofnunin standi vel fjárhagslega og búi yfir miklum mannauði auk þess sem allur aðbúnaður sé orðinn góður. „Ekki er hægt að neita því að oft hefur verið mikið basl að halda þessu gangandi en nú er stofnunin komin á mjög gott ról.“

Starfsfólk Náttúrufræðistofnunar hélt Jóni Gunnari sérstakt „Covid- kaffisamsæti“ í kveðjuskyni í gær. Hann segir að ekkert sérstakt sé á döfinni hjá sér á þessum tímamótum. „Þetta er skrýtin tilfinning en góð að vissu leyti,“ segir hann. Hann eigi sér mörg áhugamál eins og til dæmis stangveiði, skák, bóklestur og fleira. „Ég hef engar áhyggjur af því að ég finni mér ekki eitthvað til dundurs.“