Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Við erum himinlifandi. Það er mjög ánægjulegt að opnun Krónuverslunar á Akureyri sé loksins í sjónmáli eftir langt ferli,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar. Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt tillögu skipulagsráðs um nýtt deiliskipulag á svonefndum Hvannavallareit. Hann er á svæði sem afmarkast af Glerárgötu, Tryggvabraut og Hvannavöllum.
Krónan hefur átt lóðina um allnokkurt skeið, keypti hana á sínum tíma til að reisa þar verslun í höfuðstað Norðurlands. Reiturinn hefur verið til umfjöllunar hjá skipulagsyfirvöldum undanfarin misseri og með samþykkt bæjaryfirvalda nú eru skipulagsmál í höfn og Krónunni ekkert að vanbúnaði að hefjast handa.
Framkvæmdir verða samhliða við umferðarmannvirki í grenndinni en til stendur að útbúa hringtorg á gatnamótum Tryggvabrautar og Hvannavalla. Verslunin verður þar sem nú eru tveir gamlir braggar. Ásta Sigríður segir að nú yfir hörðustu vetrarmánuðina verði lokið við hönnunarvinnu, jarðvegsvinna hefjist í vor og byggingarframkvæmdir í framhaldinu. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum og opna nýja verslun árið 2022.