30 ára Bryndís Ýrr fæddist í Vesturbæ Reykjavíkur, en ólst upp á Sauðárkróki, en flutti aftur í bæinn 16 ára. Bryndís Ýrr er lögfræðingur og vinnur hjá Verði tryggingum. Helstu áhugamál Bryndísar eru golf, matargerð, ferðalög og almenn útivist.
Maki : Haukur Harðarson, f. 1986, íþróttafréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu.
Börn : Arnar Páll, f. 2014 og Andrea Guðrún, f. 2020.
Foreldrar : Þórunn Pétursdóttir, f.1964, innanhússráðgjafi og Páll Kolbeinsson, f. 1964, verkefnastjóri. Þau búa á Seltjarnarnesi.