Eftir Þorvald S. Þorvaldsson: "Hvað ætli það væri kallað ef „orkumaður“ í New York sendi stúlku til að sprengja gat á stífluna við vatnið í Central Park og hleypa úr því? Vatnið heitir Jacquline Kennedy Onassis Reservoir og er þar með uppistöðulón."
Hvað ætli það væri kallað ef „orkumaður“ í New York sendi stúlku til að sprengja gat á stífluna við vatnið í Central Park og hleypa úr því?
Vatnið heitir Jacquline Kennedy Onassis Reservoir og er þar með uppistöðulón.
Skemmdarverk, hryðjuverk?
Hvað er að gerast í Elliðaárdal?
Þetta kemur öllum borgarbúum við, já öllum Íslendingum.
Þetta er höfuðborgin okkar, er það ekki?
Höfundur er arkitekt og ýmislegt fyrrverandi, þar á meðal skipulagsstjóri Reykjavíkur. thval@simnet.is
Höf.: Þorvald S. Þorvaldsson