40 ára Runólfur Helgi ólst upp á Seltjarnarnesi og býr þar enn. Runólfur Helgi er rafvirki og vinnur hjá Héðni-Schindler-lyftum. Helstu áhugamál Runólfs Helga eru crossfit, frisbígolf og handbolti.
Maki : Auður Björg Guðmundsdóttir, f. 1985, fatahönnuður og nemi í Háskóla Íslands á menntavísindasviði.
Börn : Guðmundur Elí, f. 2011, Sigurveig, f. 2014, og Ronja Karen, f. 2017.
Foreldrar : Sigurveig Runólfsdóttir, f. 1961, hárgreiðslukona, rekur Perma hárgreiðslustofu, og Jónas Friðgeirsson, f. 1952, rafvirki. Þau búa á Seltjarnarnesi.