Anna Lísa Ásgeirsdóttir fæddist á Akureyri 12. mars 1941. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 3. nóvember 2020.

Foreldrar hennar voru hjónin Ásgeir Matthíasson, f. 3.7. 1891, d. 28.10. 1955 og Anna Luise Matthíasson, f. 11.10. 1913, d. 28.12. 1986.

Eftirlifandi systir Önnu Lísu er Annetta, f. 23.12. 1937.

Hún bjó fyrstu árin sín á Akureyri og þaðan flutti fjölskyldan til Húsavíkur, um 1960 flutti hún síðan til Keflavíkur.

Anna Lísa giftist þann 1. október 1977 Walter Gunnlaugssyni, f. 3.8. 1935, d. 3.10. 2017.

Dóttir Önnu Lísu er Anna Birgitta Nicholson, f. 19.6. 1961, hún er gift Birni Línberg Jónssyni og eiga þau fjögur börn og sex barnabörn.

Stjúpbörn: María Guðrún, Erla, Vilhjálmur og Hildur.

Anna Lísa starfaði við skrifstofu- og verslunarstörf, síðan stofnaði hún sitt eigið fyrirtæki sem var verslun og snyrtistofa í Keflavík.

Einnig var hún félagi í Oddfellowreglunni.

Útför Önnu Lísu fór fram í kyrrþey að hennar ósk.

Önnu Lísu Ásgeirsdóttur (Sússý) kynntist ég þegar hún rak snyrtistofu við Hafnargötuna í Keflavík. Hún vissi af því að ég hafði lært snyrtifræði og hana vantaði tímabundna afleysingu. Það var mikill lærdómur að vinna fyrir Önnu Lísu, já hún var af þýskum ættum og þá þurfti klukkan að vera rétt stillt fyrir hvern viðskiptavin og þá þýddi ekkert að vera að dúllast of lengi.

Upp frá þessu urðum við miklar vinkonur og aldursmunurinn á okkur skipti aldrei máli. Við fórum saman í innkaupaferðir til London, Amsterdam og ég hjálpaði til með að opna verslun í Portúgal. Ekkert stöðvaði hana og hennar einstöku framkvæmdagleði og skipulag skein ávallt í gegn. Hún gekk í hlutina og kynnti sér aðstæður á hverjum stað, lærði tungumálið og kom sér alltaf í samband við réttu aðilana og vann með þeim. Allar ferðirnar voru mér einstakar í upplifun og minningarnar um hversu mikil heimskona hún var, bóhem og naut lífsins.

Anna Lísa var gift honum Walter Gunnlaugssyni og var hann gull af manni. Þau voru mjög samrýmd og hann studdi hana í öllu sem hún tók sér fyrir hendur.

Eftir að Anna Lísa hætti að vinna og Walter orðinn veikur, þá vorum við í sambandi nærri því daglega þar sem hún var fljót að tileinka sér tölvutæknina og við skiptumst á pósti alla daga. Við áttum okkar gælunöfn sem við notuðum alla tíð hvor um aðra til loka dags, þær Sússý og Stússý.

Já, við brölluðum margt og fórum margar ferðirnar til Reykjavíkur. Stundum fengum við okkur hádegismat á Borginni, en Sússý var mjög skýr um að við skyldum sko ekki að fara á plaststólana, heldur færum við þangað sem væri uppádúkað. Ég skyldi alltaf passa upp á það.

Anna Lísa gekk í Oddfellowregluna 1986 og starfaði þar mikið, meðal annars í félagi sem vann við að stofna fyrstu Rebekkustúkuna hér í Reykjanesbæ. Hún kynnti mig fyrir Oddfellowreglunni og hefur það verið mér mikil gæfa. Ég mun ævilega vera henni þakklát fyrir það.

Að eiga vin er lífsins mesta mildi

og margur fær að skilja kraftinn þann

því það sem okkar tilvist gefur gildi

er gæska sú sem vekur kærleikann.

Ef kuldi fer um vitund vina þinna

skal vonarglætan þín þeim gefa yl

og þegar vinir skrekk og skaða finna

þá skal þitt hjarta einnig kenna til.

Að njóta allra mildi með þeim snjöllu

og merkilegum vinum sem þú átt,

það líkist því að eiga nóg af öll

og efast síst um hjartans heita mátt.

(KH)

Sendi Önnu Birgittu, Hildi, Erlu, Maju, Villi og fjölskyldum, mínar dýpstu samúðarkveðjur.

Elsku Sússý mín, megi sá sem öllu ræður umvefja sálu þína og gefi þér kærleik og frið, þar til við hittumst næst.

Elsa Skúladóttir.

Nú er komið að kveðjustund, elsku vinkona. Ég hef þekkt þig alla tíð. Þið Anna Birgitta voruð mikið með okkur fjölskyldunni þegar ég var að alast upp og á ég margar góðar og skemmtilegar minningar frá þeim tíma. Ég kallaði þig Lístu því ég gat ekki sagt Lísetta eins og foreldrar mínir kölluðu þig. Við höfum umgengist hvor aðra mikið síðustu ár. Þú sagðir öllum sem við hittum að þú hefðir keyrt mig um í hvítum barnavagni þegar ég var lítil, með glugga aftan á. Á brúðkaupsdaginn okkar Gunna keyrðir þú okkur í kirkjuna á fínu Cortínunni þinni. Ég man svo vel hversu hamingjusöm þú varst þegar þú kynntist honum Wolla þínum. Öllum líkaði vel við Wolla enda yndislegur maður með hjarta úr gulli. Þegar Wolli var á Hval 8 fór ég stundum með þér upp í Hvalfjörð til að hitta hann. Það var gaman að heyra sögur af ferðalögum ykkar enda af miklu að taka. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til ykkar, enda höfðingjar heim að sækja. Þegar veikindin bönkuðu upp á hjá Wolla stóðst þú þig eins og hetja. Þú keyrðir hann til Reykjavíkur í hvaða veðri sem var og hugsaðir um hann fram á síðasta dag.

Þú varst alltaf svo fín og vel tilhöfð, bleiki liturinn var í uppáhaldi hjá þér, hvort sem það var í klæðaburði, förðun eða bara hlutir sem prýddu heimilið þitt. Þú varst mikil athafnakona, rakst snyrtistofu, snyrtivöruverslun og svo síðar sjoppu í Keflavík. Ekki má þá gleyma þegar þú opnaðir búð í Portúgal. Þú lést ekkert stöðva þig, lærðir tungumálið sem var þér leikur einn. Oddfellow-hreyfingin var þér afar mikilvæg. Þú misstir svo mikið þegar Wolli féll frá, þá fór að halla undan fæti og veikindi þín bönkuðu hratt upp á. Allt í einu varstu orðin svo hjálparvana. Við höfum getað talað mikið saman og treyst hvor annarri þrátt fyrir aldursmuninn. Þér var mjög annt um fjölskyldu mína og fylgdist vel með og spurðir frétta af þeim næstum daglega, og átti Nína stað í hjarta þínu. Þú komst oft í heimsókn til okkar Gunna á meðan heilsan leyfði og oftast komstu með eitthvað gott úr bakaríinu. Ég á eftir að sakna þess að sjá ekki nafnið þitt á símanum mínum, eins og þegar þú varst að hringja í mig, og röddina þína, „hvað segir þú, krúttmúsin mín“. Þegar við Elsa sátum hjá þér á spítalanum daginn sem þú kvaddir sagði hún mér svo skemmtilega ferðasögu af ykkur vinkonunum. Þið voruð í Amsterdam og höfðuð keypt ykkur fallegar kápur. Þegar komið var á Schiphol-flugvöll vildir þú kaupa fullt af túlípönum í stíl við kápurnar ykkar. Þetta var þér líkt. Elsku Anna Lísa mín, nú ertu komin á stað þar sem öllum líður vel og þjáningar þínar að baki. Þú ert komin til Wolla þíns í Sumarlandið og þið sameinuð á ný. Takk fyrir samveruna og sjáumst seinna.

Í bljúgri bæn og þökk til þín,

sem þekkir mig og verkin mín.

Ég leita þín, Guð, leiddu mig

og lýstu mér um ævistig.

(Pétur Þórarinsson)

Elsku Anna Birgitta og fjölskylda, ég og fjölskyldan mín biðjum Guð að styrkja ykkur öll á þessum erfiðu tímum.

Sigurveig (Siddý).