Hersir Aron Ólafsson
Hersir Aron Ólafsson
Hersir Aron Ólafsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Hersir er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og hefur lokið BA- og meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands, auk prófs í...

Hersir Aron Ólafsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Hersir er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og hefur lokið BA- og meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands, auk prófs í verðbréfaskiptum.

Að undanförnu hefur Hersir starfað sem lögfræðingur og regluvörður Ölmu íbúðafélags hf., en áður starfaði hann hjá LOGOS lögmannsþjónustu, sem fréttamaður og þáttastjórnandi í Íslandi í dag á Stöð 2 og sem blaðamaður hjá Árvakri.