Góður Alexander Petersson var næstmarkahæstur hjá Löwen.
Góður Alexander Petersson var næstmarkahæstur hjá Löwen. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alexander Petersson, landsliðsmaður í handknattleik, var næstmarkahæstur hjá Rhein-Neckar Löwen þegar liðið vann Tatabánya 32:26 í Ungverjalandi í gær þegar liðin mættust í EHF-bikarnum.

Alexander Petersson, landsliðsmaður í handknattleik, var næstmarkahæstur hjá Rhein-Neckar Löwen þegar liðið vann Tatabánya 32:26 í Ungverjalandi í gær þegar liðin mættust í EHF-bikarnum.

Alexander skoraði sex mörk og gaf eina stoðsendingu fyrir Löwen en Alexander er nýfarinn að leika á ný eftir meiðsli sem héldu honum frá keppni um stund. Ýmir Örn Gíslason lék í vörninni hjá Löwen en skoraði ekki.

Löwen hefur unnið fyrstu þrjá leikina í D-riðli keppninnar.