Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Gert er ráð fyrir verulegum halla á rekstri sveitarfélaganna í nágrenni Reykjavíkur í fjárhagsáætlunum fyrir næsta ár.

Ómar Friðriksson

omfr@mbl.is

Gert er ráð fyrir verulegum halla á rekstri sveitarfélaganna í nágrenni Reykjavíkur í fjárhagsáætlunum fyrir næsta ár. Sveitarstjórnir allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur eru með fjárhagsáætlanir ársins 2021 til umræðu þessa dagana og búa sig undir áframhaldandi fjárhagslegar þrengingar vegna veirufaraldursins.

Ekkert þeirra gerir þó tillögu um að útsvarsálagning hækki á næsta ári og leggja meirihlutar í bæjarfélögunum til að útsvarsprósenta verði óbreytt á milli ára.

Í fjárhagsáætlun Kópavogs er gert ráð fyrir 575 milljóna kr. rekstrarhalla á samstæðu sveitarfélagsins. Í Hafnarfirði er áætlaður halli á A- og B-hluta áætlaður 1.221 milljón kr. Í Garðabæ er gert ráð fyrir 499 milljóna kr. halla á A-hluta bæjarsjóðs en að samstæðureikningurinn verði neikvæður um 71 milljón kr. Í Mosfellsbæ er gert ráð fyrir 567 milljóna króna halla á rekstri sveitarfélagsins og á Seltjarnarnesi er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðureiknings verði neikvæð um 136 milljónir kr. Gangi þetta eftir gæti samanlagður halli sveitarfélaganna fimm orðið allt að þrír milljarðar kr.

Fordæmalaus halli á Akureyri

Leggja á fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2021 fram til fyrri umræðu á fundi borgarstjórnar í dag. Fjárhagsáætlanir eru komnar mislangt á veg í sveitarfélögum víða um land. Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar var lögð fram í bæjarráði í seinustu viku. Aldrei áður hefur verið gert ráð fyrir viðlíka rekstrarhalla og á næsta ári en hann er áætlaður ríflega einn milljarður króna að því er fram kemur í kynningu en rekja megi 500 millj. kr. til halla á málaflokki fatlaðra. Lagt sé upp með hóflega hækkun á gjaldskrám, alla jafna um 2,5%, og að fasteignaskatts- og útsvarsprósentur verði óbreyttar.