Á hraða ljóssins. S-NS
Norður | |
♠KG982 | |
♥G4 | |
♦10 | |
♣ÁD873 |
Vestur | Austur |
♠D107 | ♠43 |
♥973 | ♥65 |
♦73 | ♦KDG6542 |
♣KG965 | ♣104 |
Suður | |
♠Á65 | |
♥ÁKD1082 | |
♦Á98 | |
♣2 |
Suður spilar 7♥.
Á landakortinu er vík á milli vinanna Peters Fredins og Alons Aptekers – annar býr í Svíþjóð, hinn í Suður-Afríku. En á netinu skipta fjarlægðir litlu máli og hér runnu þeir félagar í 7♥ á hraða ljóssins.
Fredin opnaði á 1♥, Apteker svaraði með 1♠ og austur hindraði í 3♦. Fredin doblaði (góð opnun), Apteker sagði 4♦ (til í allt), Fredin 4G (ég líka), 6♣ (tillaga) hjá Apteker og 7♥ (önnur tillaga) hjá Fredin. Allir pass og tígull út. Trompútspil hefði verið betra, en það var göslarabragur á sögnum og vestur vildi ekki láta makker brenna inni með hugsanlegan tígulás.
En útspilið skiptir engu máli eins og legan er og þrettán slagir voru auðteknir. Fredin trompaði tígul tvisvar í borði og tvö lauf heima, kláraði trompin og neyddi vestur til að henda frá spaðanum (upplýsingaþvingun).