Ferja Herjólfur sigldi ekki í gær vegna þess að hvorki var fært í Landeyjahöfn né til Þorlákshafnar. Reiknað var með siglingu til Þorlákshafnar í dag.
Ferja Herjólfur sigldi ekki í gær vegna þess að hvorki var fært í Landeyjahöfn né til Þorlákshafnar. Reiknað var með siglingu til Þorlákshafnar í dag. — Morgunblaðið/Óskar Pétur
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verðskrá Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs hækkar um 25-33% nú um mánaðamótin. Fráfarandi framkvæmdastjóri félagsins segir að búið sé að ráða þann fjölda starfsmanna sem þörf er á og verði órofin þjónusta ferjunnar.

Helgi Bjarnason

helgi@mbl.is

Verðskrá Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs hækkar um 25-33% nú um mánaðamótin. Fráfarandi framkvæmdastjóri félagsins segir að búið sé að ráða þann fjölda starfsmanna sem þörf er á og verði órofin þjónusta ferjunnar. Raunar sigldi skipið ekki í gær en það var vegna óhagstæðs veðurs.

Öllu starfsfólki Herjólfs var sagt upp störfum í haust vegna endurskipulagningar reksturs og endurskoðunar samninga við Vegagerðina um reksturinn. Tóku uppsagnirnar gildi 30. nóvember. Stjórn félagsins hefur að mestu lokið við gerð nýs þjónustusamnings til næstu þriggja ára. Áfram er gert ráð fyrir 6-7 ferðum á dag.

Guðbjartur Ellert Jónsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., segir að búið sé að ráða þann mannskap sem þörf verði á til reksturs fyrirtækisins í vetur. Eru það nokkuð færri starfsmenn en voru hjá félaginu enda bendir hann á að kröfur um mönnun farþegaferja taki mið af fjölda farþega hverju sinni. Ekki sé útlit fyrir marga farþega í vetur en vonandi rætist úr því í vor og þá verði væntanlega ráðnir fleiri starfsmenn.

Sértekjur hafa minnkað

Stjórn félagsins hefur unnið að gerð rekstraráætlunar fyrir næstu þrjú ár og tilkynnti hækkun verðskrár í tengslum við þá vinnu og samninga við ríkið. Hækkunin er 25% á farmiða fyrir farþega en 30-33% fyrir bíla.

Guðbjartur segir að fyrirtækið fái fast framlag frá ríkinu en sértekjur þurfi að standa undir meirihluta kostnaðar. Þegar sértekjurnar minnki jafn mikið og raun ber vitni vegna kórónuveirufaraldursins þurfi að grípa til aðgerða til að halda þessu samgöngukerfi gangandi. Stjórnin hafi því þurft að taka erfiðar ákvarðanir til að spyrna við fótum í rekstrinum.

Ný gjaldskrá
» Almennt fargjald hækkar úr 1.600 krónum í 2.000 kr., eða um 25%. Fargjald unglinga, ellilífeyrisþega, öryrkja, námsmanna og fólks sem á lögheimili í Vestmannaeyjum hækkar úr 800 kr. í 1.000 kr.
» Fargjöld fyrir minni bíla hækka úr 2.300 kr. í 3.000 eða um 30% en stærri bíla úr 3.000 í 4.000 sem er hækkun um þriðjung. Fólk sem búsett er í Eyjum fær 50% afslátt.