Guðleifur Ísleifsson útgerðarmaður fæddist 4. desember 1964 á Sjúkrahúsi Keflavíkur. Hann varð bráðkvaddur 20. nóvember 2020.

Leifur, eins og hann var alltaf kallaður, var sonur Ísleifs Guðleifssonar skipstjóra (f. 6. desember 1931) og Sigrúnar Haraldsdóttur verkakonu og húsmóður (f. 5. ágúst 1933, d. 21. maí 2020). Hann var yngsta barn þeirra hjóna. Systur Leifs eru Arnbjörg (f. 26. apríl 1957), Sveinhildur (f. 12. mars 1961), ekkja Aðalsteins Smára Valgeirssonar, og Mekkín (f. 28. mars 1963), eiginmaður hennar er Guðmundur Sæmundsson. Leifur var einhleypur og barnlaus.

Leifur ólst upp í Njarðvík og bjó þar alla sína tíð. Hann gekk í Njarðvíkurskóla og síðar fór hann í Stýrimannaskólann í Reykjavík þaðan sem hann lauk stýrimannsprófi árið 1990.

Hann byrjaði sjómannsferil sinn á stærri bátum en árið 1992 keypti Leifur sína fyrstu trillu, Adam AK 136. Það markaði upphafið að hans smábátaútgerð. Seinna eignaðist hann bátana Gamm GK 124, Leifa GK 225, Sellu GK 125 og Sellu GK 225. Leifur gerði aðallega út frá Grófinni, Sandgerði og Suðureyri.

Leifur var góður lærifaðir og fór með alla systrasyni sína; þá Ísleif og Bjarna Hólm Aðalsteinsson, Sæmund Heimi og Ísleif Guðmundsson, í þeirra fyrstu róðra. Þeir Guðmundssynir aðstoðuðu móðurbróður sinn svo á vertíðum síðustu árin.

Leifur sat í stjórn aðildarfélags Reykjaness að Landssambandi smábátaeigenda um tíma.

Leifur var sæmdur sjómannadagsorðu árið 2013 fyrir mannbjörg en hann bjargaði manni úr sjó við Suðureyri það sama ár.

Útför Leifs fer fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju klukkan 14. í dag, 2. desember 2020 en sökum fjöldatakmarkana verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Athöfninni verður streymt í facebookhópnum Útför Guðleifs Ísleifssonar. Stytt slóð á streymi:

https://tinyurl.com/yyvek4g2

Virkan hlekk á slóð má nálgast á https://www.mbl.is/andlat

Það var svo ótrúlegt, símtalið sem ég fékk, þegar ég var spurð hvort ég þekkti Guðleif. Ég hélt það nú og svaraði að hann væri bróðir minn. Þá var mér tilkynnt að hann væri látinn, að hann hefði orðið bráðkvaddur, að lífgunartilraunir hefðu ekki borið árangur. Þetta voru hræðilegar fréttir, maður í blóma lífsins 55 ára gamall.

Það er stórt tómarúm í hjarta mínu. En sem betur fer á ég margar góðar minningar sem ég get yljað mér við. Þú varst yngstur okkar systkinanna, við erum þrjár systurnar og þú eini bróðirinn. Árinu yngri en ég, þannig að við brölluðum margt saman.

Mér er mjög minnisstæð ein vikan í barnaskólanum. Þá tóku allt í einu margir strákar stóran sveig fram hjá mér þar sem ég gekk í skólann og mig grunaði strax að þú hefðir eitthvað með þetta að gera. Þú viðurkenndir þá að þú hafðir sagt einhverjum strákum sem höfðu strítt þér að Mekkín systir væri svakalega sterk og myndi berja þá alla ef þeir myndu ekki hætta að stríða þér. Þetta virkaði reyndar vel því þeir trúðu þessari vitleysu og allir sáttir.

Þú varst alltaf tilbúinn að rétta út hjálparhönd til allra. Varst hraustmenni og harðduglegur til vinnu. Þú hafðir gaman af prakkaraskap hvort sem þú áttir þátt í honum eða fékkst að heyra sögur af prakkaraskap annarra. Þú hafðir sérstaklega gaman af börnum. Börnunum og barnabörnunum mínum varst þú alltaf góður, varst alltaf til í að spjalla við þau og gantast í og með þeim. Þú varst duglegur að halda sambandinu við börnin mín og heimsækja eftir að þau byrjuðu sjálf að búa; Sæmund hér í Njarðvík, Ísleif á Egilsstöðum og Sigrúnu til Noregs. Oftar en ekki fóru þau yfir til þín í heimsókn þar sem þú bjóst í húsinu beint á móti okkur síðustu 15 ár. Það verður skrýtið og erfitt að geta ekki hlaupið yfir til þín í spjall og hlegið að góðum sögum og sjá þig skella upp úr og hristast af hlátri. Eða lenda í lambalæri, sem þú eldaðir oft á föstudögum. Það verður tómlegt að fá þig ekki yfir til okkar í mat á aðfangadag. Eða fá hringingar frá þér af sjónum, þá voru Sæmundur eða Ísleifur oft að róa með þér. Á meðan þú rerir frá Suðureyri yfir sumartímann passaði ég hundinn þinn, hann Gamm, sem þér þótti mjög vænt um og var þér góður félagsskapur þar sem þú bjóst alltaf annars einn. Það var þér erfitt þegar Gammur dó nú í haust og þar sem við vorum líka enn að syrgja mömmu okkar sem lést í vor.

Nú eruð þið öll saman í sumarlandinu. Hvíldu í friði, elsku bróðir minn, og takk fyrir allt. Minning um góðan dreng lifir.

Mekkín Ísleifsdóttir.

Guðleifur Ísleifsson vinur minn er fallinn frá, undanfarna daga hafa hrúgast upp minningar um þennan góða dreng, allt frá því að við vorum strákar fram á síðast samtalið, hef ég hlegið innra með mér með tárin í augunum. En nú verða ekki fleiri löng símtöl þar sem málin verða krufin.

Leifur var náttúrubarn og „orginal“ maður, skemmtilegur með góðan húmor, hann var kraftmikill keppnismaður, Leifur var fullkomlega laus við allan hégóma og fór hann sínar leiðir í einu og öllu, hann þurfti ekki samþykki eins eða neins, hann var ótrúlega minnugur og gat rifjað upp áratuga gömul samtöl og litla atburði, hann gat verið þrjóskur og langrækinn en hann var vinur vina sinna og áttu margir skjól hjá honum í gegnum tíðina, fjölskyldan var honum mjög kær og sinnti hann foreldrum sínum einstaklega vel, honum þótti óskaplega vænt um frændsystkinin sín og var ákaflega stoltur af þeim öllum. Leifur var prinsippmaður, hann vildi vera maður orða sinna og gerði hann kröfu um slíkt hið sama við aðra, rétt skal vera rétt og orð skulu standa voru mottó hjá honum.

Góður og kær vinskapur tekst með okkur Leifa þegar leiðir okkar liggja saman til sjós, þá báðir orðnir yfirmenn á vertíðarbátum en við höfðum þekkst frá því við vorum drengir, stundum leikið okkur saman, þá sérstaklega á bryggjunni og í fjörunni eða í íþróttum, djammað stundum saman sem unglingar og ungir menn.

á þessum tíma kaupir Leifur Selluna og byrjar aftur útgerð og urðu þau kaup honum gæfurík, hann rær í dagakerfinu og 1998 fer hann vestur í stuttan tíma, ég byrja síðan hjá honum 1999, þá var farið og dvalið allt sumarið á Súganda, síðan þá hefur Leifur farið vestur á hverju sumri og var hann orðinn einn helsti vorboðinn á Suðureyri og þótti honum vænt um þetta þorp og fólkið þar.

Genginn var á Gerpisflak

sprotafiskur með sporðablak

og okkur langaði út á skak

ekki er því að leyna.

Ég segi alveg satt frá því,

að komist við höfðum aldrei í

annað eins feikna fiskerí;

frá því skal nú greina.

Hann stökk á krókana rið í rið

og gaf okkur aldrei grunnmálið.

Já, handóður, bandóður var hann við

og veitti' ei miskunn neina.

Í hverjum drætti strollan stóð,

og vaðbeygjur sungu af vígamóð,

og seinast var skipshöfnin orðin óð

ekki er því að leyna.

Já, túra rúra...

Ég var á sjó með Leifa. Svona voru árin fyrir vestan í minningunni.

Leifur var frábær félagi og góður yfirmaður en það er ekki sjálfgefið.

Margar minningar koma upp í hugann, stóra gönguferðin upp á Spillinn, silungsveiðiferð í Fljótavík og óborganlegar kvöldstundir eftir langar vökur þar sem menn voru svefndrukknir og ruglaðir.

Leifur var lánsamur skipstjóri og formaður, hann þekkti vel inn á sjólag og veður og hvers væri að vænta í þeim efnum, Leifur var mikið hraustmenni og hefur hann t.d. bjargað tveimur mönnum þar sem hann bókstaflega reif þá upp úr sjónum einn síns liðs. hann hefur hlotið viðurkenningu sjómannadagsráðs á Suðureyri fyrir afrek og sjómennsku.

Minning hans lifir.

Kæri Ísleifur og fjölskylda, algóður guð gefi ykkur styrk í sorg ykkar.

Hreiðar Hreiðarsson.

Að eiga vin er vandmeðfarið,

að eiga vin er dýrmæt gjöf.

Vin, sem hlustar, huggar, styður,

hughreystir og gefur von.

Vin sem biður bænir þínar,

brosandi þér gefur ráð.

Eflir þig í hversdagleika

til að drýgja nýja dáð.

(Ingibjörg Sigurðardóttir)

Í dag er kvaddur kær vinur, sem hrifinn var á brott svo allt of snemma. Síðustu daga hafa verið rifjaðar upp minningar og sögur af samfylgd sem nær allt til æskuáranna hér í Njarðvík. Margt hefur verið brallað í gegnum árin, fótboltaleikirnir ófáir á malbikinu við Njarðvíkurskóla og leikirnir við höfnina. Prakkarastrikin sem gerð voru er nánast ekki hægt að telja, stundum fengum við tiltal frá laganna vörðum og höfum við félagarnir oft helgið að uppátækjunum öllum. Leifur fékk bílpróf fyrstur okkar vinanna og voru margar skemmtilegar ferðir farnar um Suðurnes og Reykjavík á Lancernum. Minnisstætt er árið sem við spiluðum saman handbolta í meistaraflokki hjá UMFN, minning um skemmtilegan keppnismann á velli og keppnisferðir. Áttu menn ekki roð í þennan víking enda Leifur alla tíð stór og sterkur. Ég var svo heppinn að fá að kynnast því að starfa með Leifi er við unnum saman hjá fjölskyldufyrirtæki mínu, Njarðtaki. Okkur sem með honum unnum leiddist aldrei í vinnunni enda engin lognmolla í kringum Leif. Var hann einstaklega duglegur til vinnu, en flýtti sér stundum um of. Gleymist seint er hann, í of stórum stígvélum og á hraðferð, steig á bensínið í stað bremsu og keyrði við það ruslapallbílinn inn í bílskúr á heimili sem var verið að hreinsa.

Tryggur og góður vinskapur hefur haldist alla tíð. Samtölin mörg um allt milli himins og jarðar. Fyrir 15 árum urðum við nágrannar, er ég fluttist með fjölskyldu mína í næsta hús við hann. Oft var farið yfir til að heilsa upp á Leif eða stoppað í innkeyrslunni og spjallað. Stelpurnar mínar voru gjarnan með í för líka. Leifur var einstaklega barngóður og átti hann stóran stað í hjarta Helgu Vigdísar enda henni einstaklega góður alla tíð. Er hún var yngri fékk hún að gera það sem hún vildi hjá honum, þar mátti borða ótakmarkaðan ís, leika sér eftirlitslaust á billjardborðinu, leika við Gamm eða fara út með hann að labba. Öll á fjölskyldan á fallegar minningar um góðan vin, ein sú dýmætasta er þegar Leifur stóð upp í brúðkaupi okkar hjóna og hélt þar ræðu. Sýndi hann okkur á sér alveg nýja hlið og kom okkur heldur betur á óvart.

Það er tómlegt að líta yfir í næsta hús þegar þeir félagar Leifur og Gammur eru ekki þar lengur. Að hugsa til þess að ekki verði bankað aftur hjá okkur með nýjan fisk í soðið og látið fylgja „segðu Óla/pabba að borða prótein svo hann verði stór og sterkur“og á eftir fylgi innilegur hlátur. Að heyra ekki fiskikör dregin til í innkeyrslunni á flestum tímum sólarhrings er Leifur var á leið á sjóinn, að ekki verði kallað yfir boð um að koma í spjall, já margs er að sakna og margs að minnast. Minningin um góðan dreng lifir í hjörtum okkar um ókomna tíð. Innilegar samúðarkveðjur sendum við föður Leifs, systrum og fjölskyldunni allri.

Ólafur Thordersen og fjölskylda.

Það var skrítið að fá símtalið um að þú værir fallinn frá, elsku Leifur. Mér brá, eins og öllum öðrum sem hafa fengið þessar sorglegu fréttir. Þú ætlaðir ekkert að fara að deyja, varst að kaupa hluti í bátinn og hafðir fullt af verkefnum fyrir stafni.

Það er skrítið hvað hugurinn fer á flug við svona fréttir. Skrítið hvaða augnablik rifjast upp. Siginn fiskur og Bailey's út í kaffið, axlaböndin og hlátursköstin þegar þið Ísleifur rifjuðuð upp hvernig þið höfðuð ruglað í einhverjum vinum þínum, Gammur og pool-borðið í stofunni, einlægi áhuginn á hversdagslegum sögum af okkur fjölskyldunni og handahreyfingarnar þínar þegar þú sagðir sögur.

Ég var heppin að fá að kynnast þér. Þú varst uppáhaldsfrændi Ísleifs og ég fékk alveg að vita að ég þyrfti að fá þitt samþykki, ef við Ísleifur ætluðum að vera saman. Þú tókst mér nú samt strax opnum örmum. Bauðst mér inn, sagðir mér að fara ekkert úr skónum, bauðst mér kaffi sem ég þáði þótt ég vissi að ég yrði andvaka, klukkan var svo margt.

Þú áttir mörghundruð sögur um allt mögulegt og svo ótrúlega fróður um margt. Ég man helst eftir – og þykir alveg sérstaklega vænt um, núna þegar ég veit að við fáum ekki annað tækifæri til þess að eiga svona stund – þegar þú tókst mig á rúntinn fyrir vestan. Ég, héraðsmaðurinn sem aldrei hafði komið vestur, hafði verið fengin til að leysa af fréttamann á Ísafirði yfir sumartímann. Þú, sem hafðir gert út frá Suðureyri í fleiri ár og þekktir þarna hvern krók og kima, bauðst til að keyra með mig um allt og ausa úr botnlausum viskubrunni þínum. Fyrir utan hvað ég lærði margt í þessum bíltúr, þá þótti mér líka vænt um félagsskapinn. Þótt þú værir feiminn þá háði það þér ekki, þú sagðir góðar sögur og hafðir notalega nærveru. Ég skal ekkert skrifa um Skjöldu eða brandarana sem þú sagðir – en það var svo gaman á þessum rúnti okkar.

Það leið varla sá dagur, þegar Ísleifur var í landi, að þið frændur tókuð ekki símtalið ykkar. Ég veit ekki hvernig ég á núna að komast að nokkru um hann Ísleif minn. Ég komst alltaf að svo miklu þegar hann spjallaði við þig. Þú kunnir að spyrja réttu spurninganna og svo fyllti Ísleifur upp í þögnina með einhverju sem ég hafði aldrei heyrt. Þú varst líka duglegur að fá fréttir af Mekkín litlu og hafðir gaman af gullkornunum og prakkarastrikunum hennar. Nú færðu að fylgjast með henni á hverjum degi og passa hana með okkur. Við pössum líka að segja henni frá Leifi frænda sem þótti svo ósköp vænt um hana.

Hvíldu í friði elsku Leifur „frændi“ – þín verður svo innilega sárt saknað.

Vigdís Diljá Óskarsdóttir.

Það var erfitt að fá fréttirnar af yndislega vini mínum Guðleifi. Hann ári yngri en ég, bróðir bestu vinkonu minnar Mekkínar. Leifur var skemmtilegur og stríðinn, glaður og kátur. Við lékum okkur saman, í fjörunni, á bryggjunni, í bátunum og í ævintýralega bílskúrnum heima hjá þeim á Borgarveginum. Við vorum góðir vinir. Það var gott að vera heima hjá þeim, ógleymanlegir kaffitímarnir þar sem mamma hans gaf okkur krökkunum að drekka og heimabakaðar kökur, ég finn enn lyktina og bragðið, besta kaffibrauðið í heimi. Á heimilinu var oft mikið fjör og skemmtilegar og glettnar samræður um lífið og tilveruna. Þessi ár höfðu mótandi áhrif á mig. Leifur var hraustur og sterkur, það var gott að leita til hans ef eitthvað bjátaði á. Hann var mjög barngóður og traustur maður, hann tók þátt í uppeldi systrabarna sinna af mikilli alúð og kærleika. Hann kom og heimsótti mig til Noregs þegar hann heimsótti systurbörnin sín. Það var mjög gaman og ánægjulegt. Eftir að ég kom heim var hann fyrsti maður til að veita mér hjálparhönd. Hann var sko vinur vina sinna. Hann hefur gefið mér óteljandi oft í soðið. Besti fiskur sem að hægt er að fá, glænýr og beinlaus.

Veislumatur í fiskisúpuna, djúpsteiktur eða soðinn. Það var gaman að heyra hann segja frá sjómennsku sinni, hann var mikill aflakóngur. Þegar hann var fyrir vestan og fyrir sunnan eða fyrir austan, alltaf jafn gaman að heyra sögurnar hans. Hann var hraustur, sterkur, skemmtilegur og mikill húmoristi. Duglegur og góð fyrirmynd.

Elsku Ísleifur, Bogga, Hildur, Mekkín og fjölskyldan öll.

Missir ykkar er mikill, megi góði guð styrkja ykkur.

Ég kveð sorgmædd vin minn Guðleif, minning þín lifir, megir þú hvíla í friði í draumalandinu.

Sigríður Pálína Arnardóttir.