Dómur Mennirnir brutu gegn börnum.
Dómur Mennirnir brutu gegn börnum.
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo karlmenn fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Annar maðurinn hlaut tveggja ára og sex mánaða dóm auk greiðslu miskabóta til brotaþola. Hann braut gegn stjúpbarnabarni sínu og var auk þess dæmdur fyrir vörslu barnakláms.

Hinn maðurinn var dæmdur til níu mánaða fangelsisvistar og greiðslu 800.000 króna í skaðabætur fyrir að hafa brotið kynferðislega á barnungri frænku sinni þegar hún var sex og sjö ára gömul. Ári áður hafði maðurinn játað að hafa brotið kynferðislega á systur sinni frá því að hún var níu ára og þangað til hún varð ellefu ára gömul.