40 ára Katrín ólst upp í Ólafsvík en flutti til Hafnarfjarðar árið 2003 og hefur búið þar síðan. Katrín er í meistaranámi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands.

40 ára Katrín ólst upp í Ólafsvík en flutti til Hafnarfjarðar árið 2003 og hefur búið þar síðan. Katrín er í meistaranámi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Helstu áhugamál Katrínar eru tónlist og kvikmyndir, ferðalög og öll útivist og samvera með fjölskyldu og vinum.

Maki : Júlíus Ingi Júlíusson, f. 1980, húsgagnasmiður hjá Þúsund fjölum.

Börn : Viktor Árni, f. 2004 og Kristófer Logi, f. 2007.

Foreldrar : Jóhanna Scheving blómaskreytir, f. 1959 og Knútur E. Knudsen leigubílstjóri, f. 1958. Þau búa bæði í Reykjavík.