Á Ítalíu Þessari skemmtilegu mynd af Mikael í leiknum náði AFP.
Á Ítalíu Þessari skemmtilegu mynd af Mikael í leiknum náði AFP. — AFP
Mikael Anderson, landsliðsmaður í knattspyrnu, lék allan leikinn með Midtjylland þegar danska liðið náði flottum úrslitum í Meistaradeild Evrópu á Ítalíu í gærkvöld.

Mikael Anderson, landsliðsmaður í knattspyrnu, lék allan leikinn með Midtjylland þegar danska liðið náði flottum úrslitum í Meistaradeild Evrópu á Ítalíu í gærkvöld.

Midtjylland gerði 1:1-jafntefli gegn Atalanta í D-riðli keppninnar og náði í sitt fyrsta stig í keppninni en ein umferð af sex er eftir í riðlakeppninni.

Alexander Scholz, fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar, kom Midtjylland yfir á 13. mínútu en Cristian Romero jafnaði fyrir Atalanta á 79. mínútu. kris@mbl.is