Heiðraður Jónatan Garðarsson hlaut Lítinn fugl við hátíðlega athöfn.
Heiðraður Jónatan Garðarsson hlaut Lítinn fugl við hátíðlega athöfn. — Ljósmyndir/Hörður Sveinsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Dagur íslenskrar tónlistar var haldinn hátíðlegur í gær og voru að venju veittar viðurkenningar velunnurum íslenskrar tónlistar. Afhendingin fór fram í Iðnó og að henni lokinni voru þrjár íslenskar dægurperlur fluttar.

Dagur íslenskrar tónlistar var haldinn hátíðlegur í gær og voru að venju veittar viðurkenningar velunnurum íslenskrar tónlistar. Afhendingin fór fram í Iðnó og að henni lokinni voru þrjár íslenskar dægurperlur fluttar.

Jónatan Garðarsson fjölmiðlamaður hlaut heiðursverðlaun dagsins, Lítinn fugl, fyrir framúrskarandi störf í þágu íslenskrar tónlistar í gegnum tíðina og þá meðal annars vandaða og metnaðarfulla dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. „Jónatan hóf að skrifa um popptónlist í dagblöð árið 1977 og um líkt leyti byrjaði hann að gera útvarpsþætti um tónlist. Seinna bættist sjónvarps- og heimildarþáttagerð við. Hann var einn af stofnendum Jazzvakningar og formaður þess félags á upphafsárunum. Hann vann við hljómplötuútgáfu frá 1978 til 1987 og var formaður Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda lengi vel. Jónatan hefur gegnt formennsku hjá Tónlistarsjóði og verið framkvæmdastjóri Félags íslenskra hljómplötuútgefenda. Jónatan hefur komið að íslenskri tónlist á margvíslegan hátt í rúma fjóra áratugi. Hann var lengi fararstjóri íslenska Eurovision-hópsins, hefur skrifað fjölmargar greinar um tónlistarmenn, hljómplötur og íslenskt tónlistarlíf, komið að bókarskrifum um íslenska tónlist, kennt rokksögu í Tónlistarskóla FÍH og Menntaskóla í tónlist og haldið fyrirlestra um íslenska tónlist um árabil. Hann tók þátt í að setja Rokksafn Íslands á laggirnar og skrifaði allan texta safnsins. Undanfarin ár hefur hann starfað hjá Ríkisútvarpinu meðal annars við þáttagerð,“ segir í tilkynningu.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hlaut hvatningarverðlaun Dags íslenskrar tónlistar fyrir „öfluga og metnaðarfulla dagskrá undanfarin ár, m.a. kvikmyndartónlistarverkefnið SinfoniaNord“, eins og segir í tilkynningu og voru það stofnendur SinfoNord-verkefnisins, tónskáldin Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Atli Örvarsson, sem veittu viðurkenningunni viðtöku. Fyrir aukna innlenda dagskrárgerð, miðlun tónlistar í samkomubanni og atfylgi við íslenska tónlist í sjónvarpi hlaut Sjónvarp Símans viðurkenninguna Gluggann og Íslenska bylgjan hlaut nýsköpunarverðlaun Dags íslenskrar tónlistar.

Boðið var upp á tónlistaratriði sem hæfðu tilefninu og voru þrjár söngperlur fluttar í dagskránni auk þess sem grunnskólabörn, fyrir tilstilli tónmenntakennara um allt land, tóku þátt í því og sungu með. Söngperlurnar þrjár voru „Esjan“ með Bríeti Ísis Elfar, „Tunglið, tunglið taktu mig“, við ljóð Theodóru Thoroddsen, sem Diddú og Ljósin í bænum gerðu vinsælt árið 1978, og „Lítill fugl“ eftir Sigfús Halldórsson.