Dagur Lárusson og Úlfar Konráð Svansson hafa undanfarið ár verið að skrifa bókina „Landverðirnir“ sem fjallar um ofurhetjurnar Atlas og Avion.
Dagur Lárusson og Úlfar Konráð Svansson hafa undanfarið ár verið að skrifa bókina „Landverðirnir“ sem fjallar um ofurhetjurnar Atlas og Avion. Meðfram því að skrifa bókina hönnuðu þeir Dagur og Úlfar ofurhetjubúninga og boli með mynd af aðalsöguhetjunum. Þeir mættu í viðtal til Þeirra Loga Bergmanns og Evu Ruzu í síðdegisþættinum og sögðu þeim frá hugmyndinni á bak við bókina ásamt því að ræða við þau um heimsóknir sínar á Barnaspítala Hringsins. Viðtalið má nálgast á K100.is.