Scott Atlas
Scott Atlas
Scott Atlas, einn af helstu ráðgjöfum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í kórónuveirufaraldrinum, sagði af sér í fyrrinótt. Atlas hefur verið umdeildur, en hann hefur m.a. lagst hart gegn því að fólki verði gert skylt að nota andlitsgrímu.

Samkvæmt Fox-fréttastöðinni átti ráðningarsamningur Atlas að renna út í næstu viku, en ólíklegt þótti að Joe Biden, verðandi forseti, hefði viljað endurnýja hann. Þakkaði Atlas í uppsagnarbréfi sínu Trump fyrir heiðurinn og óskaði Biden góðs gengis í baráttunni við heimsfaraldurinn.