Liverpool er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu karla eftir 1:0-sigur gegn Ajax á Anfield í gær. Eina mark leiksins skoraði hinn 19 ára gamli Curtis Jones á 58. mínútu leiksins.
Liverpool er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu karla eftir 1:0-sigur gegn Ajax á Anfield í gær. Eina mark leiksins skoraði hinn 19 ára gamli Curtis Jones á 58. mínútu leiksins. Sigurinn þýðir að Liverpool er búið að vinna D-riðil Meistaradeildarinnar þegar einni umferð er ólokið.
Sigursælasta lið í sögu keppninnar, Real Madríd, þarf að hafa fyrir því að komast áfram en liðið tapaði í gær í annað sinn fyrir Shakhtar Donetsk.