30 ára Einar Freyr ólst upp í Sólheimahjáleigu í Mýrdal en býr núna á Loðmundarstöðum. Einar Freyr er oddviti sveitarstjórnar Mýrdalshrepps og tekur þátt í fjölskyldurekstri á gistiheimili og sauðfjárbúi. Síðan er hann tónlistarmaður í hjáverkum. Hann er nýbúinn að gefa út sitt fyrsta lag, Bjartur, sem er komið á Spotify og hann er með fleiri lög í vinnslu.
Börn : Gréta Björk, f. 2013, Ásmundur Kristinn, f. 2018 og Hlöðver Þór, f. 2020.
Foreldrar : Elín Einarsdóttir, f. 1967, skólastjóri og Magnús Þór Snorrason, f. 1966, d. 2020.