Úr lið Martin var seinheppinn í gær og engin áhætta var tekin.
Úr lið Martin var seinheppinn í gær og engin áhætta var tekin. — Morgunblaðið/Hari
Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, gat lítið beitt sér gegn stórliði Barcelona í ACB-deildinni spænsku í gær. Hann fór úr lið á fingri strax á fjórðu mínútu leiksins.

Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, gat lítið beitt sér gegn stórliði Barcelona í ACB-deildinni spænsku í gær. Hann fór úr lið á fingri strax á fjórðu mínútu leiksins. Martin kom ekki meira við sögu en gat þó fagnað frábærum úrslitum með liðsfélögum sínum því Valencia vann 100:90 en leikurinn var í Barcelona. Martin reyndi að hita aftur upp í hálfleik en ljóst var að hann var ekki leikfær. Er þetta í þriðja skipti sem sami fingurinn fer úr lið hjá Martin. kris@mbl.is