Halldór Gunnarsson
Halldór Gunnarsson
Eftir Halldór Gunnarsson: "Öll þessi málsmeðferð ber vott um ranglæti með málflutningi ríkisstjórnar og verður lygi um stöðu þessa fólks, sem minnst ber úr býtum."

Enn einu sinni mismunar ríkisstjórn Íslands sama fólkinu í landinu. Það eru um 32 þúsund einstaklingar, sem fá greitt úr almannatryggingum vegna aldurs. Þessi hópur á ekki að fá neina desemberuppbót, þótt allir aðrir samfélagshópar fái hana. Það er ekki aðeins þessi mismunun heldur flytja ráðherrar fram rök í ræðu og riti, vafalaust með hjálp sérfræðinga og embættismanna, um að vel hafi verið gert við þennan hóp og tilnefna þá gjarnan hækkun á bótum, án þess að nefna fjölgun bótaþega og fleiri dæmi, sem eru í besta falli kvartsannleikur:

1. Íslenska ríkið greiðir minnst allra ríkja innan OECD úr almannatryggingum til þessa fólks. Í skýrslum er því haldið fram að Ísland sé í miðjum hópi þessara landa, en þá er tekið mið af greiðslum lífeyrissjóða til fólksins, greiðslum sem það á og hefur sjálft lagt til með sparnaði. Þessar greiðslur sem ríkið sparar sér með skerðingum á greiðslum almannatrygginga námu árið 2018 um 34 milljörðum. Hálfur ógnvekjandi sannleikur.

2. Við fjölgun skattþrepa fyrir ári var því haldið fram að það væri gert til þess að bæta kjör hinna lægst launuðu og útskýrt með rökum í ræðum og með myndum. Ekki var sagt frá því að í tillögunum var gert ráð fyrir lækkun á skattleysismörkum sem tók að mestu út þessi bættu kjör. Líklega kvartsannleikur.

3. Ráðherrar hafa rætt um nýgerðar breytingar á almannatryggingum í þágu eldra fólks, sem mátti skilja að næðu til þessara 32 þúsund einstaklinga. Reyndin var sú, að þetta náði til um 800 manns, einkum þeirra sem komu frá öðrum löndum. Miklu minna en kvartsannleikur.

4. Hækkun launa á þessu ári er reiknuð með óskiljanlegum hætti 3,6% í væntanlegum fjárlögum út frá hækkun einhverrar vísitölu árið 2019. Þessa hækkun á að greiða mánaðarlega til eldra fólks frá almannatryggingum frá 1. janúar 2021! Launin hækkuðu árið 2019 um a.m.k. 7% og laun hafa hækkað þetta ár um a.m.k. 10%, þannig að þessi hópur ber í þessari viðmiðun hækkun tveggja ára á móti 17% hækkun almenns launafólks af hærri launum. Þessi launagliðnun hefur árlega átt sér stað í mörg ár. Þvílík meðferð og mismunun á launþegum almannatrygginga.

5. Í boðuðum fjárlögum fyrir árið 2021 er sagt að bætur/laun almannatrygginga hækki til þessa fólks eins og annarra hópa um 2,5% að viðbættri áðurnefndri 3,6% hækkun eða um 6,1% samtals og verði þá kr. 341.300 á mánuði. Það er nákvæmlega kvartsannleikur, því aðeins þeir sem búa einir, eða um fjórðungur þessa fólks, um 10 þúsund manns, fá þessa hækkun með heimilisuppbótinni, sem þarna er talin með, kr. 64.889 á mánuði.

6. Hjón og sambúðarfólk sem er um ¾ hluti þessa fólks, um 22 þúsund manns, fá grunnbætur að upphæð kr. 256.789 á mánuði, sem með hækkuninni verður þá kr. 272.453. á mánuði en ekki kr. 341.300.

Öll þessi málsmeðferð ber vott um ranglæti, sem í tilvísun til laga og með málflutningi ríkisstjórnar verður lygi um bætta stöðu þessa fólks, sem minnst ber úr býtum. Kosningaloforð um bætur voru svikin. Það býr að auki við 45% skerðingu á lögbundnum greiðslum almannatrygginga gagnvart fjármagnstekjum og þar með lífeyrissjóðstekjum og til viðbótar hindrun í að vinna sér til bjargar frá fátækt umfram 100 þúsund kr. á mánuði, því þá nema skerðingar með skatti um 80% af þeim launum.

Höfundur er formaður kjararáðs Félags eldri borgara í Rangárvallasýslu.