Vínber Borða þarf vínberin heima.
Vínber Borða þarf vínberin heima.
Sú hefð að gæða sér á vínberjum á Puerta del Sol-torgi á miðnætti á gamlárskvöld í Madrid hefur verið bönnuð af borgaryfirvöldum.

Sú hefð að gæða sér á vínberjum á Puerta del Sol-torgi á miðnætti á gamlárskvöld í Madrid hefur verið bönnuð af borgaryfirvöldum. Vínberjafögnuðurinn hefur alla jafna laðað marga að og því vildu yfirvöld ekki taka neina áhættu vegna Covid-19-faraldursins. Raunar hafa allir viðburðir á gamlárskvöld verið bannaðir í borginni. Þá hafa verið settar fjöldatakmarkanir á jólamarkaði í desember.

Spánn er meðal þeirra landa ESB sem orðið hafa verst úti vegna veirufaraldursins. Um 46 þúsund hafa fallið þar í landi.