Frijsenborg Danskt-ítalskt flutningaskip siglir með vörurnar.
Frijsenborg Danskt-ítalskt flutningaskip siglir með vörurnar.
Norræna fer í sína síðustu ferð í bili frá Seyðisfirði í næstu viku því hún fer í tveggja og hálfs mánaðar viðgerð og endurbætur í skipasmíðastöð í Danmörku.

Norræna fer í sína síðustu ferð í bili frá Seyðisfirði í næstu viku því hún fer í tveggja og hálfs mánaðar viðgerð og endurbætur í skipasmíðastöð í Danmörku. Búið er að taka á leigu annað skip til að flytja vörur á meðan en skipið er ekki með aðstöðu til að flytja farþega.

Frijsenborg, skipið sem Smyril line, hefur tekið á leigu til að leysa vöruflutningahlutverk Norrænu er nýlegt skip, svokallað RO/RO-skip, það er að segja flutningatækjunum er ekið um borð og frá borði. Skipið er í eigu danskrar útgerðar en siglir undir ítölskum fána. Skipið kemur í fyrstu ferð til Seyðisfjarðar 5. janúar og siglir síðan vikulega á milli Seyðisfjarðar, Þórshafnar og Hirtshals, þar til Norræna kemur úr slipp.

Fær andlitslyftingu

Norræna gegnir mikilvægu hlutverki í flutningi vara til og frá Austurlandi og Norðurlandi. Almennur varningur er fluttur til landsins með skipinu en uppistaðan í útflutningnum er ferskur fiskur og ekki síður lax sem kemur bæði frá laxeldisfyrirtækjunum á Austfjörðum og Vestfjörðum.

Norræna fer ekki aðeins í hefðbundna viðgerð heldur fær skipið andlitslyftingu og klefum verður fjölgað. Það verður gert með því að byggja yfir efstu hæð skipsins. Með breytingunni fást 50 tveggja manna káetur, auk nýs útsýniskaffihúss.

Lítið er að gera í farþegaflutningum vegna kórónuveirufaraldursins. Linda Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line á Íslandi, segir að vonandi verði allt komið á fulla ferð aftur þegar skipið kemst í gagnið á ný, í byrjun mars.

helgi@mbl.is