Tottenahm og Liverpool sitja áfram í toppsætum ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar. José Mourinho og lærisveinar hans fengu Arsenal í heimsókn á Tottenham Hotspur-völlinn og unnu nágranna sína 2:0.
Tottenahm og Liverpool sitja áfram í toppsætum ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar. José Mourinho og lærisveinar hans fengu Arsenal í heimsókn á Tottenham Hotspur-völlinn og unnu nágranna sína 2:0. Harry Kane og Son Heung-min skoruðu mörk Tottenham sem tapaði síðast deildarleik 13. september og virðist til alls líklegt á tímabilinu. Þá skoruðu Englandsmeistarar Liverpool fjögur mörk gegn Wolves þegar liðin mættust á Anfield en Liverpool er ósigrað í síðustu 64 deildarleikjum sínum á Anfield. 27