Öflug Nora Mørk skoraði 12 mörk fyrir norska liðið í stórsigri.
Öflug Nora Mørk skoraði 12 mörk fyrir norska liðið í stórsigri. — Ljósmynd/EHF
Noregur gerði sér lítið fyrir og vann 42:23-sigur á Þýskalandi á Evrópumóti kvenna í handbolta í Danmörku á laugardag. Noregur er með fullt hús stiga í D-riðli eftir tvær umferðir. Nora Mørk fór á kostum hjá norska liðinu og skoraði 12 mörk.

Noregur gerði sér lítið fyrir og vann 42:23-sigur á Þýskalandi á Evrópumóti kvenna í handbolta í Danmörku á laugardag. Noregur er með fullt hús stiga í D-riðli eftir tvær umferðir. Nora Mørk fór á kostum hjá norska liðinu og skoraði 12 mörk. Camilla Herrem bætti við sjö. Xenia Smits og Emily Bolk skoruðu fjögur hvor fyrir Þýskaland. Þórir Hergeirsson þjálfar norska liðið.

Noregur mætir Rúmeníu í lokaleik liðsins í riðlinum í kvöld klukkan 19:30.