Súpa dagsins. S-NS
Norður | |
♠1083 | |
♥D63 | |
♦ÁG9 | |
♣DG105 |
Vestur | Austur |
♠9 | ♠G52 |
♥ÁKG72 | ♥1095 |
♦K862 | ♦D753 |
♣K84 | ♣962 |
Suður | |
♠ÁKD764 | |
♥84 | |
♦104 | |
♣Á73 |
Suður spilar 4♠.
Vestur leggur til nokkra væna kjötbita í varnarsúpu dagsins, en það er lítils að vænta hjá makker hans í austur. Tvær flísar af vænum sauð gætu þó gert gæfumuninn.
Suður vakti á 1♠, vestur doblaði og norður redoblaði. Suður sagði 2♠ til að sýna sexlitinn og norður stökk í fjóra. Hjartaásinn út og tían úr austrinu – frávísun, sem fyrst og fremst neitar tvíspili. Hvernig er nú best að hræra í súpunni?
Með sleif. Þá kemur upp úr kafinu að austur getur ekki átt laufásinn. En ef austur á svo lítið sem tíguldrottningu er von. Tígultían myndi líka hjálpa mikið – eða bara spaðagosinn til að fyrirbyggja að sagnhafi komist inn í borð á tromp. Í því tilfelli verður að þruma út tígulkóngi (!) og skera þannig rækilega á sambandið við blindan í eitt skipti fyrir öll. Það dugir ekkert sleifarlag.