Icelandic Roots Netfundur sjálfboðaliða á Zoom í heimsfaraldri. Sunna Furstenau er önnur til vinstri í efstu röð.
Icelandic Roots Netfundur sjálfboðaliða á Zoom í heimsfaraldri. Sunna Furstenau er önnur til vinstri í efstu röð.
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Um þessar mundir eru sjö ár síðan Sunna Pam Olafson-Furstenau kom sjálfseignarstofnuninni Icelandic Roots (IR) á koppinn í þeim tilgangi að safna saman upplýsingum um sögu og ættir Íslendinga og íslenskra vesturfara, veita aðgang að þeim gegn gjaldi og styrkja þannig málefni, sem tengjast Vesturheimi og Íslandi. „Við höfum veitt yfir 102.000 dollara í styrki frá upphafi og þar af um 7.500 dollara í Vesturheimi og um 5.000 dollara á Íslandi í ár,“ segir hún, um 13 milljónir króna, og leggur áherslu á að IR komi öllum að notum, jafnt Íslendingum sem öðrum.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Um þessar mundir eru sjö ár síðan Sunna Pam Olafson-Furstenau kom sjálfseignarstofnuninni Icelandic Roots (IR) á koppinn í þeim tilgangi að safna saman upplýsingum um sögu og ættir Íslendinga og íslenskra vesturfara, veita aðgang að þeim gegn gjaldi og styrkja þannig málefni, sem tengjast Vesturheimi og Íslandi. „Við höfum veitt yfir 102.000 dollara í styrki frá upphafi og þar af um 7.500 dollara í Vesturheimi og um 5.000 dollara á Íslandi í ár,“ segir hún, um 13 milljónir króna, og leggur áherslu á að IR komi öllum að notum, jafnt Íslendingum sem öðrum.

Á árlegri Íslendingahátíð í Mountain í Norður-Dakóta (August the Deuce) sameinast fjölskyldur, ættingjar og vinir af íslenskum ættum. George A. Freeman byrjaði með ættfræðisetur í tengslum við hana 2003, veitti gestum og gangandi upplýsingar um ættartengsl og þess háttar. „Ég gekk til liðs við hann og við notuðum gagnagrunn Hálfdáns Helgasonar, sem ég fékk síðan til afnota fyrir IR 2013,“ segir Sunna. Íslendingum á ferðalagi hafi verið hjálpað við að komast í samband við ættingja í Norður-Dakóta og Manitoba og upplýsingagjöfin hafi gengið mjög vel. Þegar hún hafi verið beðin um að fara í fyrirlestraferð um Ísland með erindi sem hún nefndi „The Love of Iceland in America“ 2012 hafi hún opnað netsíðuna icelandicroots.com til að blogga um ferðina og fræða jafnframt lesendur um Ísland, söguna og íbúa landsins. „Ég hef skrifað yfir 300 blogg, en nú sér sérstakur hópur sjálfboðaliða hjá IR að mestu um skrifin,“ segir hún og áréttar að hún eigi ekki IR, allt starf sé unnið af sjálfboðaliðum og allur hagnaður renni til góðra mála.

Hlaðvarp ungs fólks í janúar

Sjálfboðaliðar IR eru ekki aðeins í Norður-Ameríku og á Íslandi heldur einnig til dæmis í Ástralíu og Brasilíu. Sunna segir að þar á meðal séu 17 ættfræðingar og fimm tæknimenn auk sagnfræðinga, kortagerðarmanna, sérfræðinga í upplýsingatækni og svo framvegis. Í ættfræðigrunninum, sem allir geti keypt aðgang að, séu um 707.000 nöfn og um 2.000 manns bætist við mánaðarlega. Upplýsingar séu af ýmsum toga og þar á meðal megi finna 1.558 kirkjugarða og yfir 26.000 staði, sem tengist fólkinu. „Hópar sjálfboðaliða vinna ómetanlegt starf á hverjum degi,“ segir hún.

Ýmislegt er sér til gamans gert hjá IR og þar er til dæmis boðið upp á spjall, mismunandi námskeið og viðburði. Þar má nefna líkamsræktarverkefnið „Fótspor til gamans“, sem dró að sér 136 manns, en IR er með um 600 áskrifendur. „IR er ekki einungis nöfn og tölur heldur svo mikið meira,“ segir Sunna og leggur áherslu á að áskrift sé ekki nauðsynleg til að taka þátt í ýmsum verkefnum. „Líkamsræktarverkefnið var sérstök fjáröflun, stóð yfir í átta vikur og var frábært. Margir voru með vegna þess að þeir eru hreyknir af íslenska upprunanum og við söfnuðum 5.289 dollurum.“

Sunna lítur björtum augum til framtíðarinnar og nefnir að eftir áramót fari ungt fólk af stað með hlaðvarp (e. podcast), þar sem fjölbreytnin verði í fyrirrúmi. „Við höldum bara áfram að bæta við og eflast eins og við getum.“