Tvö Viggó Kristjánsson er í öðru sæti yfir markahæstu menn.
Tvö Viggó Kristjánsson er í öðru sæti yfir markahæstu menn. — Ljósmynd/Stuttgart
Ómar Ingi Magnússon og Viggó Kristjánsson halda áfram að gera það gott með liðum sínum í þýsku 1. deildinni í handbolta. Ómar Ingi skoraði níu mörk fyrir Magdeburg í 30:25-sigri á Lemgo í gær.
Ómar Ingi Magnússon og Viggó Kristjánsson halda áfram að gera það gott með liðum sínum í þýsku 1. deildinni í handbolta. Ómar Ingi skoraði níu mörk fyrir Magdeburg í 30:25-sigri á Lemgo í gær. Gísli Þorgeir Kristjánsson bætti við þremur mörkum fyrir Magdeburg og Bjarki Már Elísson gerði fimm fyrir Lemgo. Viggó skoraði sjö mörk fyrir Stuttgart sem þurfti að sætta sig við 25:30-tap fyrir Wetzlar. Viggó er í öðru sæti yfir markahæstu menn með 83 mörk og Bjarki Már í fjórða sæti með 70 mörk.