Starfsfólk K100 þarf reglulega að vera mikið á ferðinni og sökum þess vildum við kanna hvaða möguleika við hefðum til þess að velja umhverfisvænsta ferðamátann. Niðurstaðan varð sú að K100 fer nú í samstarf við umboðsaðila Volkswagen á Íslandi, Heklu.
Starfsfólk K100 þarf reglulega að vera mikið á ferðinni og sökum þess vildum við kanna hvaða möguleika við hefðum til þess að velja umhverfisvænsta ferðamátann. Niðurstaðan varð sú að K100 fer nú í samstarf við umboðsaðila Volkswagen á Íslandi, Heklu. K100 ferðast því nú um í 100% gleði á 100% rafmagni í Volkswagen ID.3. „Það er afar skemmtilegt að sífellt fleiri fyrirtæki velji umhverfisvæna kosti og fögnum við samstarfi við K100. Starfsfólk K100 er mikið á ferðinni og því upplagt að velja rafmagnsbíl með drægni sem dugir þeim vel yfir daginn,“ segir Halldóra Anna Hagalín markaðsstjóri Heklu um samstarfið.