Rímnaflæði Rapparinn Bróðir BIG sést hér einbeittur á tónleikum.
Rímnaflæði Rapparinn Bróðir BIG sést hér einbeittur á tónleikum. — Ljósmynd/Geirix
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Með enga tengingu við tíðarandann nefnist nýútkomin breiðskífa tvíeykisins BRRóðir BIG, þ.e. þeirra Brr the Beat Maker og Bróður BIG, gefin út af Birthday Boy Records.
Með enga tengingu við tíðarandann nefnist nýútkomin breiðskífa tvíeykisins BRRóðir BIG, þ.e. þeirra Brr the Beat Maker og Bróður BIG, gefin út af Birthday Boy Records. Bróðir BIG, réttu nafni Birkir Kristján Guðmundsson, var upphaflega einn á ferð, áður en Brr the Beat Maker, réttu nafni Bjarni Rafn Ragnarsson, kom til sögunnar og við bættist eitt R í Bróður.

Eysteinn Eyvindsson hannaði umslag plötunnar og Kéz LcF letrið, blaðamaður nefnir við Birki að það sé nokkuð spaugilegt, einhvers konar sveitasæla þar á ferð. „Platan er svolítið tvískipt,“ svarar Birkir. „Á fyrri partinum er ég að fjalla um svolítið mikilvæg málefni sem getur verið svolítið þungt og erfitt... bætir upp fyrir allt þetta erfiða. Plötukóverið er þannig að allt er voðalega fallegt framan á en allt voðalega ljótt aftan á,“ segir Birkir en á afturhliðinni má sjá mengun, dýr flutt til slátrunar og hunda að grafa upp beinagrind, svo eitthvað sé nefnt.

Flóttafólk og vegan-skilaboð

– Hvaða erfiðu umfjöllunarefni eru á neikvæðu hliðinni?

„Til dæmis fjallar lagið „Dúfa“ um stríð og flóttafólk og lagið „Sjúkt ástand“ fjallar um hvað við komum illa fram við dýr, vegan-skilaboð í því,“ svarar Birkir. Einnig komi við sögu ill meðferð fólks á öðru fólki og tveir vinir hans sem nú eru látnir. „Mig langaði með þessari plötu að koma frá mér mikilvægum málefnum, hingað til hef ég aðallega verið að leika mér með orð,“ segir Birkir. Héðan í frá muni hann svo einbeita sér að því að gera skemmtilega tónlist.

En hvað skyldi þá vera á jákvæðri hlið plötunnar? „Það er bara eitthvað skemmtilegt, skemmtilegt rapp með góðu vibe-i,“ svarar Birkir. Fyrsta lagið á þeirri hlið heiti „Eina leiðin“ sem snúist um að taka af skarið og gera sitt sem sé eina leiðin. „Svo eru þetta bara skemmtilegar rappvísur og ekki mikill alvarleiki.“

– Þið vinnið saman, þið Brr the Beat Maker, hvernig rapp aðhyllist þið? Í hvað sækið þið innblástur?

„Við erum báðir hreinræktaðir hipphopp-hausar og höfum hlustað á allt hipphopp síðustu 30 ár. Ég fæ oft þennan „old school“-stimpil á mig en ég yrði móðgaður ef fólk færi að kalla þessa plötu „old school“ því sándið á henni er svo nýtt. Mér finnst ekkert „old school“ við þetta þótt trommutakturinn sé kannski þetta týpíska „boom bap“ hipphopp,“ svarar Birkir. Innblásturinn komi úr öllum áttum og líka frá annars konar tónlist en hipphoppi.

Góðir gestir

Friðrik Þór Jóhannsson sá um upptökustjórn og hljóðblöndun plötunnar, Bróðir BIG um rappið, DJ Bricks um svokallað plötuklór og Fonetik Simbol masteraði. Góðir gestarapparar koma við sögu og bera skrautleg nöfn eins og rappara er siður: Kött Grá Pjé, Vivid Brain, Peter Overdrive, Morgunroði, M.V. Elyahsyn úr Regni, Holy Hrafn, MC Bjór og Stelpurófan úr Krakk & Spaghettí. Um hljóðfæraleik á plötunni sáu hljómborðsleikarinn Magnús Jóhann Ragnarsson, trommarinn Magnús Trygvason Eliassen og bassaleikarinn Zakarías Herman Gunnarsson. Geisladiskar og bolir verða til sölu á samfélagsmiðlum hjá Bróður BIG og Brr eða með tölvupósti á brodirbig@gmail.com og verða vínylplötur framleiddar eftir pöntunum. Plötuna má svo finna í stafrænni útgáfu á netinu og meðal annars á Spotify. helgisnaer@mbl.is