Lára og Jónatan Lára var að gefa úr bók með smásögum. Hún er 6 ára.
Lára og Jónatan Lára var að gefa úr bók með smásögum. Hún er 6 ára. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Mér detta sögurnar bara í hug. Til dæmis fékk ég hugmyndina að sögunni um hamstrana þegar ég passaði hamstra fyrir frænda minn.

„Mér detta sögurnar bara í hug. Til dæmis fékk ég hugmyndina að sögunni um hamstrana þegar ég passaði hamstra fyrir frænda minn. Ég les líka mikið og þá detta mér oft einhverjar sögur í hug,“ segir Lára Jónatansdóttir, sex ára stelpa í fyrsta bekk í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi, en hún samdi nýlega bók sem heitir Smásögur Láru, og geymir fjórar sögur eftir þennan upprennandi rithöfund sem myndskreytir líka sögurnar. „Sögurnar heita Skopparaboltinn sem kunni ekki að skoppa, Minnsta tröll í heimi og litríka húsið, Hamstrarnir sem týndust á nesinu og Óhappadagur Ólínu og Óla. Pabbi minn hjálpaði mér við að búa til bókina. Ég teiknaði myndirnar fyrst á blað, en litla systir mín krotaði á það og þá ákváðum við pabbi að teikna myndir í i-padinum. Þar lærði ég á teikniforrit og svo setti pabbi bókina upp til prentunar. Við létum prenta 10 bækur og ætluðum fyrst bara að gefa vinkonum mínum og ættingjum bók í jólagjöf, en núna vilja fleiri fá bók svo við erum búin að panta fleiri. Fólk vill borga fyrir bækurnar og við höfum ákveðið að gefa allan peninginn til Barnaspítala Hringsins,“ segir Lára sem færði Kristínu kennaranum sínum líka eina bók. Hún segist lesa fyrir yngri systur sína og segja henni sögur þegar hún fer á koppinn, svo hún sitji kyrr. „Ég æfi líka dans og fótbolta og finnst það mjög skemmtilegt.“ khk@mbl.is