Á miðunum Á loðnuvertíð 2016.
Á miðunum Á loðnuvertíð 2016. — Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Hafrannsóknastofnun fær 120 milljón króna aukaframlag til rannsókna og leitar að loðnu samkvæmt breytingartillögum fyrir þriðju umræðu. Ráðgert er að næsti loðnuleiðangur verði farinn í byrjun janúar.

Hafrannsóknastofnun fær 120 milljón króna aukaframlag til rannsókna og leitar að loðnu samkvæmt breytingartillögum fyrir þriðju umræðu. Ráðgert er að næsti loðnuleiðangur verði farinn í byrjun janúar.

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fundaði á fimmtudag með fulltrúum stofnunarinnar og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi um fyrirkomulag loðnuleitar á næstu vikum og mánuðum. Í fréttatilkynningu kemur fram að samstaða sé um að leitin verði eins umfangsmikil og þörf er á enda miklir hagsmunir í húfi.

Í fyrradag tilkynnti Hafrannsóknastofnun ráðgjöf um aflamark upp á 21.800 tonn að loknum mælingum fjögurra veiðiskipa í samvinnu við Hafrannsóknastofnun. Ekki tókst að fara yfir allt leitarsvæðið vegna hafíss út af Vestfjörðum og standa vonir til að meira finnist af loðnu í leiðangrinum upp úr áramótum.

Engar loðnuveiðar hafa verið stundaðar við Ísland síðustu tvo vetur. Eftir mælingar á ungloðnu haustið 2019 ríkti jákvæðni um að loðnuveiðar yrðu stundaðar í vetur og var ráðlagður upphafskvóti 170 þúsund tonn. Í kjölfar mælinga tveggja rannsóknaskipa í september 2020 var ráðgjöfin endurskoðuð en þá lagði Hafrannsóknastofnun til að engar veiðar yrðu stundaðar nema mælingar á stærð stofnsins í janúar og febrúar 2021 gæfu tilefni til.

„Það skiptir miklu fyrir viðspyrnu efnahagslífsins að loðna veiðist í vetur en áætlað hefur verið að útflutningsverðmæti um 170 þúsund tonna af loðnu nemi um 25 milljörðum króna. Með auknu fjármagni til loðnuleitar á komandi vikum og mánuðum er verið að skapa meiri vissu um leitina og tryggja um leið að leitin verði eins umfangsmikil og þörf er á,“ er haft eftir Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í fréttinni. aij@mbl.is