Glannar Glanni glæpur og Leigu-Glannarnir þrír í Latabæjarþættinum góða.
Glannar Glanni glæpur og Leigu-Glannarnir þrír í Latabæjarþættinum góða.
Latabæjarþátturinn Robbie's Dream Team er í 20. sæti á nýbirtum lista tímaritsins Newsweek yfir 100 bestu sjónvarpsþætti allra tíma. Þátturinn er úr fjórðu seríu Latabæjar sem framleidd var árið 2014 og hefur m.a.
Latabæjarþátturinn Robbie's Dream Team er í 20. sæti á nýbirtum lista tímaritsins Newsweek yfir 100 bestu sjónvarpsþætti allra tíma. Þátturinn er úr fjórðu seríu Latabæjar sem framleidd var árið 2014 og hefur m.a. að geyma ska-lag Mána Svavars, „We Are number One“ sem varð mikill „meme“-smellur. Í þættinum fer Stefán Karl Stefánsson heitinn á miklum kostum sem Glanni glæpur en með honum leika þrír gestaleikarar hinn svonefnda Leigu-Glanna, þeir Bergur Þór Ingólfsson, Björn Thors og Snorri Engilberts.