Aðalsteinn Jónsson Vel búinn tækjum til bergmálsmælinga og greiningar.
Aðalsteinn Jónsson Vel búinn tækjum til bergmálsmælinga og greiningar. — Ljósmynd/Gungör Tamzok
Rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson héldu úr höfn í Hafnarfirði upp úr hádegi í gær til loðnuleitar og mælinga.

Rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson héldu úr höfn í Hafnarfirði upp úr hádegi í gær til loðnuleitar og mælinga. Síðdegis og í gærkvöldi var ráðgert að Aðalsteinn Jónsson SU, Ásgrímur Halldórsson SF og grænlenska skipið Polar Amaroq héldu einnig til leitar.

Að sögn Birkis Bárðarsonar, fiskifræðings á Hafrannsóknastofnun, er útlit fyrir þokkalegt veður fram á föstudag, en föstudagur og laugardagur gætu orðið erfiðir. Hann segist vonast til að á næstu dögum náist að fara að minnsta kosti eina yfirferð yfir leitarsvæðið frá Vestfjarðamiðum og austur í Héraðsdýpi.

Birkir segir að hafís gæti torveldað leit í Grænlandssundi og er meiri hafís þar heldur en vonast hafði verið til. Fullorðin loðna var við ísröndina á þessum slóðum í leiðangri í desember, en hugsanlega hefur sú loðna gengið af því svæði og það kemur í ljós hvort meiri loðna birtist undan ísnum. aij@mbl.is