Seyðisfjörður Langan tíma mun taka að vinda ofan af hamförunum.
Seyðisfjörður Langan tíma mun taka að vinda ofan af hamförunum. — Morgunblaðið/Eggert
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is Íbúafundur var á Seyðisfirði í gærkvöldi vegna hættustigs almannavarna og rýmingaráætlunar sem þar er í gildi eftir að aurskriður féllu í bænum fyrir jól.

Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir

liljahrund@mbl.is

Íbúafundur var á Seyðisfirði í gærkvöldi vegna hættustigs almannavarna og rýmingaráætlunar sem þar er í gildi eftir að aurskriður féllu í bænum fyrir jól.

„Þetta var í raun upplýsingafundur og við fengum að sjá tímalínu á hreinsunarstarfinu, fórum yfir stöðuna á þessu svæði, hverjar væntingarnar eru frekar en niðurstöður. Það voru kannski vonbrigði fyrir marga að það var engin afgerandi niðurstaða um þetta en það er bara of snemmt að spá um það,“ segir Aðalheiður L. Borgþórsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri á Seyðisfirði og fulltrúi sveitarstjóra Múlaþings.

Aðalheiður segir að verið sé að safna saman gögnum og vinna úr þeim áður en ákvarðanir verða teknar um framhaldið.

„Þeir gátu ekki sagt hvenær rýmingu yrði aflétt eða neitt slíkt. Þetta var aðallega til að leyfa íbúum að fylgjast með því sem er verið að gera. Við stefnum á fund fljótlega aftur þegar þetta er skýrara. Það er alveg viðbúið að það verði ekki leyft að búa aftur á ákveðnu svæði og fólk vill þá vita hvernig verður með uppkaup og annað, það er enn óljóst hvernig verður með það,“ segir Aðalheiður.