Vegan veisla Tvennt nýtt vegan meðlæti er nú komið á matseðil Domino´s og fleira væntanlegt.
Vegan veisla Tvennt nýtt vegan meðlæti er nú komið á matseðil Domino´s og fleira væntanlegt.
Veganúar er brostinn á með öllum sínum frábæru vegan-nýjungum og nú hefur Domino´s bætt í og er með þrennt meðlæti á matseðlinum sem er vegan en þar af er tvennt nýtt.

Veganúar er brostinn á með öllum sínum frábæru vegan-nýjungum og nú hefur Domino´s bætt í og er með þrennt meðlæti á matseðlinum sem er vegan en þar af er tvennt nýtt.

Um er að ræða gömlu góðu brauðstangirnar sem núna hafa verið baðaðar í sterkri cajun kryddolíu, vinsæla kanilgottið sem er nú bakað úr létta deiginu en þar er notuð kanilolía í stað kanilsmjörs. Að síðustu eru það kartöflubátarnir sem eru og hafa alltaf verið vegan.

Að sögn Helgu Thors, markaðsstjóra Domino´s, er þetta forsmekkurinn að vegan úrvali á Veganúar og verður bætt við vegan úrvalið hægt og rólega út janúar. Þess megi jafnframt geta að pizzan Vegas er vegan pizza en hún kom á matseðil í fyrra og var unnin með vegan rýnihópi Domino´s. Það sé kannski ekki hægt að segja að grænkerar séu stór hópur viðskiptavina hjá Domino´s, en hann fer stöðugt vaxandi auk þess sem Vegas hefur verið vinsæl hjá grænmetisætum og öðrum sem huga almennt að heilsunni. Það sé því afar ánægjulegt að geta boðið upp á breiðara vöruúrval fyrir þann hóp.