Ávallt viðbúinn. S-Enginn
Norður | |
♠853 | |
♥752 | |
♦Á82 | |
♣KG63 |
Vestur | Austur |
♠KDG2 | ♠Á1074 |
♥G84 | ♥D103 |
♦K3 | ♦G5 |
♣Á952 | ♣D1087 |
Suður | |
♠96 | |
♥ÁK96 | |
♦D109764 | |
♣4 |
Suður spilar 3♦.
„Ávallt viðbúinn,“ segja skátar og það heilræði á vel við í vörn – sérstaklega þegar KG birtist í blindum. Suður passar sem gjafari, vestur opnar á 1♣, austur svarar á 1♠ og suður kemur inn á 2♦. Vestur segir 2♠ og norður 3♦. Allir pass og spaðakóngur út.
Setjum okkur í spor vesturs. Hann veit – eða á að vita – að fyrr eða síðar mun sagnhafi spila laufi að KG í borði. Og þá er eins gott að vera viðbúinn. Að sinni er þó ekkert annað að gera en spila öðrum háspaða og sjá hvað setur.
Þegar suður fylgir lit í síðari spaðann afhjúpast skiptingin í heild sinni. Makker hefði sagt 1♥ með 4-4 í hálitunum og því er ljóst að sagnhafi á fjórlit í hjarta og sennilega sexlit í tígli – suður hefði doblað 1♠ með 4-5. Málið er því leyst: Hvenær svo sem laufið óhjákvæmilega kemur úr suðrinu verður rokið upp með ás.