Í vanda Støjberg sést hér hlýða á umræðu á þinginu árið 2016.
Í vanda Støjberg sést hér hlýða á umræðu á þinginu árið 2016. — AFP
Taldar eru góðar líkur á því að Inger Støjberg, fyrrverandi varaformaður Venstre og fv. ráðherra innflytjendamála, yrði sakfelld fyrir embættisafglöp sín fyrir Landsdómi Danmerkur, að mati tveggja óháðra lögfræðinga sem unnu skýrslu fyrir danska þingið.

Taldar eru góðar líkur á því að Inger Støjberg, fyrrverandi varaformaður Venstre og fv. ráðherra innflytjendamála, yrði sakfelld fyrir embættisafglöp sín fyrir Landsdómi Danmerkur, að mati tveggja óháðra lögfræðinga sem unnu skýrslu fyrir danska þingið. Greidd verða atkvæði í næstu viku um hvort Støjberg verði ákærð.

Støjberg sagði af sér varaformennsku í Venstre, helsta stjórnarandstöðuflokki Danmerkur, skömmu fyrir áramót, en þá hafði komið í ljós að hún hafði afvegaleitt danska þingið um þá atburðarás sem leiddi til þess að ráðuneyti hennar gaf út árið 2016 ólögleg fyrirmæli um aðskilnað allra para sem sóttu um hæli í Danmörku, ef annar aðilinn var undir 18 ára aldri. Fyrirmælin voru síðar sögð ólögleg af umboðsmanni þingsins, þar sem þau kölluðu á aðskilnað án nokkurrar undantekningar eða rannsóknar á málsatvikum.

Jakob Elleman-Jensen, formaður Venstre, lýsti því yfir fyrir áramót að hann styddi að Støjberg yrði dregin fyrir Landsdóm vegna málsins, en stjórnmálaskýrendur danska ríkisútvarpsins sögðu í gær að bæði Venstre og Sósíaldemókrataflokkurinn væru hikandi við að stíga það skref, en gera má ráð fyrir innanflokksátökum í Venstre vegna málsins.

Landsdómur var síðast kallaður saman í Danmörku á 10. áratug 20. aldar vegna Tamíla-málsins svonefnda, en þá var Erik Ninn-Hansen dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í fjóra mánuði fyrir að hafa komið í veg fyrir að flóttamenn úr hópi Tamíla gætu sameinast fjölskyldum sínum sem þegar voru löglega í Danmörku.