500 Næsti leikur Íslands er gegn Þýskalandi í Duisburg.
500 Næsti leikur Íslands er gegn Þýskalandi í Duisburg. — Morgunblaðið/Eggert
Viðureign Þýskalands og Íslands í fyrstu umferð undankeppni heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu sem fram fer 25. mars verður leikin í Duisburg á Schauinsland-Reisen-leikvanginum. Hann rúmar ríflega 31 þúsund áhorfendur en þar var m.a.

Viðureign Þýskalands og Íslands í fyrstu umferð undankeppni heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu sem fram fer 25. mars verður leikin í Duisburg á Schauinsland-Reisen-leikvanginum. Hann rúmar ríflega 31 þúsund áhorfendur en þar var m.a. leikið í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í sumar.

Leikurinn verður sögulegur fyrir íslenska landsliðið því þetta verður 500. A-landsleikur karla frá upphafi, allt frá því Ísland tók á móti Danmörku á Melavellinum í fyrsta leik sínum árið 1946.