Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem jafnan er kenndur við Postura, var í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað fjórum konum á meðferðarstofu sinni.

Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem jafnan er kenndur við Postura, var í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað fjórum konum á meðferðarstofu sinni. Um nokkurra ára gömul mál er að ræða en brotin eru talin hafa átt sér stað á tímabilinu 2009 til 2015. Um fimmtán konur kærðu Jóhannes upphaflega til lögreglu, en rannsókn lögreglu leiddi til þess að ákært var í fjórum tilvikum. Í dómnum segir að hann hafi beitt konurnar ólögmætri nauðung. Í einhverjum tilvikum var Jóhannes sakaður um að fara með hönd sína inn að kynfærum skjólstæðinga sinna. Jóhannes rak fyrirtækið Postura þar sem hann meðhöndlaði fólk sem glímdi við stoðkerfiskvilla.

Steinbergur Finnbogason, verjandi Jóhannesar, sagði við mbl.is í gær að dómnum verði áfrýjað. „Það eru engar sannanir og þetta er ekkert annað en orð gegn orði. Það verður tekist á um þetta fyrir Landsrétti, það er að segja hvort þetta sé nóg til að sakfella hann.“